Metþátttaka á ráðstefnu eldis- og ræktunargreina

Gunnar Þórðarson, MATÍS og formaður Strandbúnaðar.
Gunnar Þórðarson, MATÍS og formaður Strandbúnaðar. Ljósmynd/Aðsend

Metþátt­taka var á Lag­ar­lífi – ráðstefnu eld­is- og rækt­un­ar­greina – sem lauk síðdeg­is í dag. Þetta full­yrðir Gunn­ar Þórðar­son, einn skipu­leggj­enda ráðstefn­unn­ar. Hann seg­ir tæp­lega 500 gesti haf sótt ráðstefn­una og kveðst hæst ánægður með hvernig hafi tek­ist til.

„Aldrei hafa fleiri fyr­ir­tæki tekið þá og stutt Lag­ar­líf og að þessu sinni. Áber­andi eru fyr­ir­tæki sem þjón­usta ört vax­andi sjó­eld­is­fyr­ir­tæki og líta til mik­ill­ar upp­bygg­ing­ar land­eld­is á Íslandi. Mikl­ar fjár­fest­ing­ar standa til í þess­um grein­um og aug­ljóst að mörg fyr­ir­tæki munu njóta góðs af því,“ seg­ir Gunn­ar.

Ráðstefn­an Lag­ar­líf hófst í gær­morg­un og lauk eins og fyrr seg­ir nú síðdeg­is. Ráðstefn­an er hald­in af Strand­búnaði ehf. en til­gang­ur fé­lags­ins er að stuðla að fag­legri og fræðandi um­fjöll­un um eld­is- og rækt­un­ar­grein­ar og styðja þannig við mennt­un, rann­sókn­ir, þróun og stefnu­mót­un grein­ar­inn­ar.

Gunn­ar seg­ir það hafa verið áber­andi hve já­kvæður og létt­ur andi hafi verið yfir ráðstefn­unni. „Þó að þröngt væri á þingi á Grand hót­el, mátti vel sjá að fólk naut sýn vel og hafði gam­an af fé­lags­skapn­um. Scale AQ bauð til veislu eft­ir að hefðbund­inni dag­skrá lauk á fimmtu­deg­in­um þar sem jafn­framt var boðið upp á tónlist,.“

„Fram­kvæmdaaðilar eru í skýj­un­um eft­ir vel heppnaða ráðstefnu og greini­legt að Lag­ar­líf er á góðri sigl­ingu og stefnt verður á enn stærri og betri Lag­ar­líf að ári. Það má segja að allt hafi gengið upp að þessu sinni,“ seg­ir hann að lok­um.

Fjöldi gesta sóttu ráðstefnuna.
Fjöldi gesta sóttu ráðstefn­una. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
mbl.is