Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi þá ákvörðun Matvælastofnunar og Umhverfisstofnunar að heimila ekki kynslóðaskipt eldi á laxi í sjókvíum í Trostansfirði, einum innfjarða Arnarfjarðar. Byggist ákvörðunin á því að árnar sem eru innan fjarlægðarmarka fyrirhugaðs eldis teljist ekki sjálfbærar veiðiár.
Laxeldisfyrirtækið Arctic Fish hefur í mörg ár undirbúið framleiðslu á 4.000 tonnum af laxi í Arnarfirði. Gert var ráð fyrir kynslóðaskiptu eldi á þremur eldissvæðum, í Trostansfirði, við Lækjarbót og við Hvestudal.
Fjallað er nánar um málið í Morgunblaðinu í dag.