Nýtt stjórnendateymi hjá Geo Salmo

Karl Kári Másson, Eva Dögg Jóhannesdóttir, Garðar Sigþórsson, Jóhannes Gíslason …
Karl Kári Másson, Eva Dögg Jóhannesdóttir, Garðar Sigþórsson, Jóhannes Gíslason og Eyþór Helgason hafa verið ráðin inn í lykilstöður hjá landesldisfyrirtækinu Geo Salmo. Ljósmynd/Geo Salmo

Fimm nýir starfs­menn hafa verið ráðnir hjá land­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Geo Salmo sem vinn­ur nú að því að koma upp um­fangs­mik­illi fram­leiðslu á laxi skammt frá Þor­láks­höfn.

Fram kem­ur í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu að nýju starfs­menn­irn­ir „koma til með að sinna margs kon­ar verk­efn­um tengd­um upp­bygg­inu fé­lags­ins, en fisk­eld­is­stöðin og tengd­ar bygg­ing­ar eru meðal stærstu fram­kvæmda sem einkaaðili hef­ur ráðist í á Íslandi.“

Í ág­úst und­ir­ritaði fyr­ir­tækið samn­ing við norska fyr­ir­tækið Artec Aqua um hönn­un og upp­bygg­ingu stöðvar­inn­ar og er heild­ar­verðmæti samn­ings­ins á bil­inu 21 til 25 millj­arða króna. Eft­ir bygg­ingu fyrsta áfanga á stöðin að geta fram­leitt 7.300 tonn ár­lega en full­byggð get­ur fram­leiðslan ná 20 þúsund tonn­um.

Með mikla reynsla að baki

Eva Dögg Jó­hann­es­dótt­ir gegn­ir starfi gæða- og um­hverf­is­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins og hóf störf snemma í haust. Í til­kynn­ing­unni seg­ir að sé sjáv­ar­líf­fræðing­ur en hafi einnig numið fisk­eld­is­fræði. Hún hef­ur margþætta reynslu af rann­sókn­um  sem tengj­ast um­hverf­isáhrif­um fisk­eld­is en starfaði síðast að leyf­a­mál­um og rann­sókn­um hjá Arctic Fish.

Eyþór Helga­son hóf einnig störf snemma hausts sem tækn­i­stjóri fé­lags­ins. Hann er tækni­fræðing­ur og vél­stjóri og hef­ur víðtæka reynslu af hönn­un og rekstri flók­inna tækni­legra kerfa. Hann mun stýra verk­efn­um er snúa að vél­búnaði og upp­bygg­ingu mann­virkja.

Karl Kári Más­son hóf störf á dög­un­um sem fjár­mála­stjóri Geo Salmo. Hann er viðskipta­fræðing­ur með MBA gráðu og hef­ur m.a. starfað í ýms­um stöðum hjá Lands­bank­an­um og Kviku, og nú síðast í fyr­ir­tækjaráðgjöf Kviku í 5 ár.

Garðar Sigþórs­son hóf ný­verið störf sem yf­ir­maður seiðaeld­is. Hann er fisk­eld­is­fræðing­ur og hef­ur yfir 20 ára reynslu í fisk­eldi á landi, hjá Stofn­fiski, Arn­ar­laxi og Löx­um fisk­eldi. Hann mun koma að öllu seiðaeldi fyr­ir­tæk­is­ins, m.a. end­ur­bygg­ingu seiðastöðvar fé­lags­ins í Landsveit og upp­bygg­ingu nýrr­ar seiðastöðvar í Ölfusi.

Jó­hann­es Gísla­son mun hefja störf á næstu miss­er­um, en hann hef­ur verið ráðinn yf­ir­maður sölu- og markaðsmá­la hjá Geo Salmo. Jó­hann­es er viðskipta­fræðing­ur með sterka reynslu af sölu fiskaf­urða, þ.á.m. síðastliðin 6 ár hjá Arn­ar­laxi. Hann mun byggja upp sölu­kerfi og markaðsstaðsetn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins.

„Geo Salmo stefn­ir á um­fangs­mik­inn vöxt á næstu árum og afar mik­il­vægt fyr­ir fé­lagið að njóta liðsinn­is starfs­fólks með fjöl­breytta reynslu af viðfangs­efn­um fyr­ir­tæk­is­ins. Það er veru­lega ánægju­legt að sjá að fyr­ir­tækið er aðlaðandi fyr­ir reynslu­mikið starfs­fólk og teymið er nú vel í stakk búið að tak­ast á við verk­efn­in framund­an,“ seg­ir Jens Þórðar­son, fram­kvæmda­stjóri Geo Salmo.

mbl.is