Ljóst er að aðgerðir eru nauðsynlegar vegna rakaskemmdra innviða í húsnæði Menntaskólans við Sund. Þetta kemur fram í svari Framkvæmdasýslunnar-Ríkiseigna (FSRE) við spurningum mbl.is hvort mygla hafi fundist í húsnæði skólans.
„Aðgerðir munu felast í verklegum framkvæmdum þar sem rakaskemmdir innviðir verða fjarlægðir, mygla hreinsuð út, sé hún til staðar. Að lokum eru innviðir endurbyggðir,“ segir í svari FSRE.
Í sumar kom í ljós að raki hafði myndast á tilteknum stöðum í innviðum skólans þegar FSRE vann þar að reglubundnu viðhaldi. Var því samið við verkfræðistofuna Eflu um gerð fullnaðarúttektar á rakaskemmdum í byggingum skólans.
Sú úttekt stendur nú yfir og býst FSRE við því að niðurstöður hennar liggi fyrir undir lok þessa árs.
„Ljóst er á þessum tímapunkti að aðgerðir verða nauðsynlegar. Niðurstaða úttektar munu ráða hversu umfangsmiklar aðgerðir verða,“ segir í svari FSRE.
Þar segir einnig að komið gæti til breytinga á fyrirkomulagi kennslu á meðan framkvæmdir fara fram. Það ráðist af því hversu umfangsmiklar framkvæmdirnar verða sem þarf að ráðast í.
Helga Sigríður Þórsdóttir, rektor í MS, gat staðfest að raki hafi fundist og hafi þess vegna verið pöntuð úttekt. Hún benti blaðamanni á að beina öllum spurningum til FSRE er hún var spurð um það hvort mygla hafi fundist í húsnæði skólans.