Öll atvik nú skráð hjá Rannsóknarnefnd

Miðlæga skráningarkerfið var kynnt um borð í Sæbjörgu sem liggur …
Miðlæga skráningarkerfið var kynnt um borð í Sæbjörgu sem liggur við Bótabryggju. mbl.is/sisi

Samgöngustofa og Rannsóknarnefnd samgönguslysa (RNSA) kynntu nýtt miðlægt skráningarkerfi sjóslysa „ATVIK – sjómenn“ á blaðamannafundi í Sæbjörg, skólaskipi Slysavarnaskóla sjómanna, í gær.

Öll atvik verða nú skráð hjá RNSA en ekki hjá þremur aðilum eins og áður var. Auk þess eru bundnar vonir við að í auknum mæli verða gerðar atvikaskráningar þegar næstum verða slys í þeim tilgangi að búa til gagnagrunn sem nýstist við að bæta forvarnir.

Kerfið gerir útgerðum kleift að tilkynna slys og atvik tengd sjómönnum rafrænt og geta sjómenn sjálfir, bæði yfir- og undirmenn, skráð slys og næstum því slys á sjó.

Fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: