Nokkrar stofnanir ríkisins gera alvarlegar athugasemdir við tillögur að strandsvæðaskipulagi fyrir Vestfirði og Austfirði. Telja að núverandi og ráðgerð atvinnustarfsemi, sérstaklega sjóeldi, þrengi að siglingaleiðum og ógni þar með öryggi sjófarenda.
Unnið hefur verið að gerð strandsvæðaskipulags fyrir Vestfirði og Austfirði síðustu ár.
Svæðisráð auglýstu tillögur í upphafi sumars og barst fjöldi umsagna og athugasemda. Þannig bárust 124 athugasemdir við tillögu að strandsvæðaskipulagi á Vestfjörðum og 97 athugasemdir á Austfjörðum. Athugasemdirnar og umsagnirnar eru frá ýmsum stofnunum og samtökum sem og einstaklingum.
Fréttaskýringu um málið má lesa í Morgunblaðinu í dag.