Kaupa stærsta pramma Íslandssögunnar

Pramminn sem Arnarlax mun taka í notkun verður sá stærsti …
Pramminn sem Arnarlax mun taka í notkun verður sá stærsti sem nýttur er hér á landi. Mynd/Scale AQ

Fisk­eld­is­fyr­ir­tækið Arn­ar­lax á Vest­fjörðum hef­ur gengið frá samn­ingi um kaup á stærsta fóðurpramma sem sést hef­ur hér á landi og með þeim stærri sem sést hafa í fisk­eld­is­geir­an­um á heimsvísu. Hann tek­ur 900 tonn af fóðri og er hannaður til að þola allt að 11 metra öldu­hæð, að því er seg­ir á vef fram­leiðand­ans Scale AQ.

Þar seg­ir að Arn­ar­lax búi við sér­stak­lega krefj­andi veðurfars­leg­ar aðstæður og því hafi verið ákveðið að festa kaup á steypt­um pramma sem geng­ur und­ir nafn­inu Ásgarður 900 (Aasgard 900), en pramm­inn er sá fyrsti af þess­ari teg­und sem tek­inn verður í notk­un.

Pramm­inn get­ur borið 120 tonn af meltu og verið þak­inn 200 tonn­um af hrími og klaka án þess að það hafi áhrif á stöðug­leika hans, en burðargeta hans er alls 1.500 tonn.

Pramminn mun þjónusta fisk í kvíum félagsins á Vestfjörðum.
Pramm­inn mun þjón­usta fisk í kví­um fé­lags­ins á Vest­fjörðum. Ljós­mynd/​Arn­ar­lax

„Við erum vön að starfa á opn­um og óvörðum svæðum. Til þess að fá aðgang að auknu fram­leiðslu­rými erum við að koma okk­ur utar í firðina. Það hef­ur í för með sér aukn­ar áskor­an­ir í tengsl­um við veður, vind og sjó,“ er haft eft­ir Birni Hembre, for­stjóra Arn­ar­lax.

„Vegna erfiðra veður­skil­yrða get­ur verið erfitt að kom­ast að sjókví­un­um til að sinna fóðrun og er því gert ráð fyr­ir að hægt verði að stýra fóðrun­inni úr landi. Þá seg­ir Hembre einnig mik­il­vægt að pramm­inn skapi vinnu­um­hverfi sem trygg­ir ör­yggi starfs­manna,“ seg­ir hann.

Stærri en sá fyr­ir aust­an

Pramm­inn er alls 40,5 metr­ar að lengd og 13,5 metra breiður. Um borð er vinnu­stofa, fjór­ar ká­et­ur, eld­hús og dval­ar­rými fyr­ir starfs­menn. Þá er hægt að tengja pramm­ann raf­magni úr landi auk þess sem gert er ráð fyr­ir ljósa­vél og ol­íu­tanki.

Fisk­eldi Aust­fjarða/​Lax­ar, sem rekið er und­ir nafni eign­ar­halds­fé­lags­ins Ice Fish Farm, fengu í vor af­hent­an fyrsta steypta fóðurpramm­ann á Íslandi. Sá gat borið 600 tonn af fóðri og var af gerðinni Ásgarður 600. Sá er 33 metr­ar á lengd og 13,5 metr­ar á breidd.

mbl.is