Áhrifavaldurinn góðkunni, Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, er snúin aftur til musteri áhrifavaldanna, Instagram. Instagram-reikningur Guðrúnar Veigu var hakkaður þann 20. október síðastliðinn og tókst henni ekki að endurheimta hann þrátt fyrir mikla baráttu.
Guðrún Veiga, sem notaðist við nafnið gveiga85 á samfélagsmiðlum, heitir hún gudrunveiga á Instagram.
Guðrún Veiga ræddi við mbl.is í síðustu viku um fjarveru sína frá Instagram, en hún var með rúmlega 30 þúsund fylgjendur á miðlinum þegar hún glataði reikningnum. Þá sagði hún að meirihluti tímans frá Instagram hafi verið hræðilegur, en að það hafi líka verið dálítið gott að fá smá hreinsun.
„Auðvitað er algjör martröð að láta kippa svona undan sér fótunum þegar lífsviðurværi manns er annars vegar, get ekkert lýst þeirri tilfinningu neitt. En ég komst nú nokkuð hratt að því að ég eyði bersýnilega alltof miklum tíma í tilgangslaust skroll yfir þessa miðla - vissi varla hvað ég átti að gera við hendurnar á mér þarna fyrst um sinn,“ sagði Guðrún Veiga sem færði sig tímabundið yfir á gamla góða Snapchat.
Nú er hún hins vegar mætt aftur í öllu sínu veldi og byrjuð að skreyta fyrir jólin.