Björgunarbáturinn Hafdís á Fáskrúðsfirði er nú komin með bráðabirgðahaffærisskírteini.
Þetta staðfestir Óskar Guðmundsson, formaður sjóflokks björgunarsveitarinnar Geisla, í samtali við mbl.is en á sunnudag var greint frá því að báturinn hefði ekki fengið útgefið leyfi þar sem beðið var eftir að starfsmaður hjá Samgöngustofu kæmi úr Spánarfríi.
Í skriflegu svari frá Samgöngustofu til mbl.is í gær sagði að rangt væri farið með staðreyndir í umfjölluninni þar sem að fjarvera einstakra starfsmanna tefði ekki útgáfu haffæris.
Óskar segir að svör Samgöngustofu sem bárust björgunarsveitinni fyrir helgi hafi verið á þá leið að ekki væri hægt að gefa út leyfið fyrr en starfsmaðurinn kæmi úr frí sem hann svo gerði á mánudag. Bráðabirgðahaffærisskírteini Hafdísar tók síðan í gildi í gær.
Í svari Samgöngustofu frá því í gær sagði að forsendur þess að haffærisskírteini fáist útgefið séu að öllum gögnum hafi verið skilað inn, þau yfirfarin og samþykkt með tilliti til gildandi reglna.
Óskar segir að öllum gögnum hafi verið skilað til stofnunarinnar fyrir löngu síðan.
„Við fengum þetta bráðabirgðahaffæri vegna þess að þeir krefjast þess að framkvæmt verði hallapróf á bátnum aftur. Það er sem sagt búið að gera það tvisvar og í seinna skiptið þá var starfsmaður Siglingastofnunnar viðstaddur. Það komu engar athugasemdir,“ segir hann og bætir við að um mánuður sé síðan að síðasta mæling var gerð.
„Það komu engar athugasemdir fyrr en það var búið að birta fréttina á mbl.is. Þá fara þeir fram á að þetta verði gert aftur vegna þess að það væru einhverjir ágallar á þessu,“ segir Óskar og bætir við að það sé skipasmíðafyrirtækisins Rafnars, sem seldi Geisla bátinn, að vera í samskiptum við Samgöngustofu.
Hann bætir við að ekki sé óalgengt að nýskráðir bátar fái bráðabirgðaheimild á meðan verið sé að bæta úr „einhverju svona smotterí sem þarf að bæta úr“.
Bráðabirgðahaffærisskírteinið gildir til 10. janúar og segir Óskar að lokum að Hafdísin sé því loks til taks ef útkall kemur.