Var með fordóma gagnvart miklum aldursmun

Leikarinn Alec Baldwin og eiginkona hans, Hilaria Baldwin.
Leikarinn Alec Baldwin og eiginkona hans, Hilaria Baldwin. AFP

Alls er 26 ára aldursbil milli hjónanna Alecs og Hilariu Baldwin, en þau eiga í dag sjö börn saman og eru afar lukkuleg hvort með annað. Hilaria viðurkennir þó að hafa verið með fordóma gagnvart pörum með miklu aldursbili áður en hún kynntist Alec. 

Í podcasti Hilariu, Witches Anonymous, talar hún opinskátt um gömlu skoðanir sínar. 

Skipti um skoðun eftir að hún hitti eiginmann sinn

„Áður en ég hitti eiginmann minn þá dæmdi ég pör með miklu aldursbili,“ sagði Hilaria og bætti við að hún hefði efast um fyrirætlanir slíkra para. 

„Ég leit svo á að eldri menn vildu ungar konu með engar skoðanir. Yngri konur væru svo augljóslega gullgrafarar og alveg sama, og hugsi: „Ég vona að þú deyir og ég ætla að taka alla peningana þína“,“ útskýrði Hilaria. 

Hilaria segist þó hafa skipt um skoðun eftir að hafa hitt Alec. „Af hverju var ég svona dómhörð á annað fólk sem var bókstaflega bara að finna ástina? Kannski lítur ástin þeirra öðruvísi út en þú og ást þín, eða hvernig ástin mín væri. En það gerir það ekki að verkum að ástin sé ekki gild,“ bætti hún við. 

Hjónin með börnunum sínum.
Hjónin með börnunum sínum. ANGELA WEISS
mbl.is