Það væsir ekki um nýgiftu hjónin Grant Troutt og Madison Prewett sem eru um þessar mundir stödd í mikilli lúxusbrúðkaupsferð á Los Cabos í Mexíkó.
Troutt og Prewett gengu í hið heilaga í síðasta mánuði við vægast sagt glæsilega athöfn í Texas með 400 gestum. Nú njóta þau sín í botn sem nýgift hjón og sleikja sólina.
Árið 2020 var Prewett þátttakandi í 24. þáttaröð raunveruleikaþáttanna The Bachelor þar sem hún keppti um hjarta piparsveinsins Peters Weber, en hún hafnaði í öðru sæti í þáttaröðinni. Tveimur árum síðar hefur hún loks fundið draumaprinsinn sem fór á skeljarnar fyrir rúmum þremur mánuðum, en þá höfðu þau verið par í átta mánuði.
Bachelor-stjarnan birti myndaröð frá brúðkaupsferðinni á Instagram-reikningi sínum á dögunum, en af myndum að dæma er rómantíkin í hámarki hjá hjónunum.
Prewett sýndi einnig lúxusvilluna sem hjónin gista í, en þegar þau mættu tók á móti þeim haf af rauðum blöðrum og „Mr & Mrs Trout“-blöðrur prýddu gólfsíðan glugga með stórkostlegu útsýni.
Í framhaldinu má sjá einkasundlaug við villu hjónanna og fallega verönd, en af myndböndunum að dæma er villan afar glæsileg og ekki amalegur staður til að njóta með ástinni sinni.