Beint: Hrygning makríls á Norðuratlantshafi

Thassya Christina dos Santos Schmidt, sérfræðingur hjá Hafannsóknastofnun, flytur erindið …
Thassya Christina dos Santos Schmidt, sérfræðingur hjá Hafannsóknastofnun, flytur erindið í höfuðstöðvum stofnunarinnar. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

Thassya Christ­ina dos Santos Schmidt, sér­fræðing­ur hjá Hafann­sókna­stofn­un, flyt­ur er­indi um hrygn­ingu og hrygn­ing­ar­svæði mak­ríls í höfuðstöðvum stofn­un­ar­inn­ar í Hafnar­f­irði.

Efnið má rekja til rann­sókn­ar henn­ar og benda niður­stöður til þess að þrosk­un eggja sé stöðugt í gangi og því sé mak­ríll að hrygna oft yfir hrygn­ing­ar­tím­ann.

Þá hafi komið í ljós að 90% hrygna voru til­bún­ar til hrygn­ing­ar í maí, og um 10% í júní og júlí. Um það bil 38% af sýn­un­um sem tek­in voru á seinni mánuðunum gefa til kynna að hrygn­ingu væri lokið og leif­ar óþroskaðra eggja grein­an­leg­ar. Niður­stöðurn­ar benda til þess að mak­ríll hafi endað hrygn­ingu til að nýta ork­una fyr­ir fæðuleit til að safna upp orku til að geta hrygnt aft­ur síðar.

Er­indið er í beinu streymi en fer fram á ensku og ber nafnið: „New find­ings on Nort­heast Atlantic mack­erel (Scom­ber scombrus) reproducti­ve stra­tegy and extensi­on of spawn­ing area into Nordic Seas.“

mbl.is