Metár í útflutningi eldisafurða

Útflutningsverðmæti eldisafurða á fyrstu 10 mánuðum þessa árs eru meiri …
Útflutningsverðmæti eldisafurða á fyrstu 10 mánuðum þessa árs eru meiri en nokkru sinni hefur gerst á heilu ári. Ljósmynd/Ágúst Atlason

Útflutn­ings­verðmæti eldisaf­urða var 38 millj­arðar króna á fyrstu 10 mánuðum árs­ins, sem er 24% aukn­ing frá sama tíma­bili í fyrra og 29% aukn­ing sé tekið til­lit til geng­is­breyt­inga, sam­kvæmt bráðabirgðatöl­um Hag­stofu Íslands.

Í grein­ingu Radars­ins er sér­stak­lega vak­in at­hygli á að aldrei hafa út­flutn­ings­verðmæt­in verið meiri á fyrstu tíu mánuðum og aldrei verið meiri á heilu ári.

Mynd/​Radar­inn

„Þró­un­in í ár er nokkuð ólík þeirri þróun sem verið hef­ur und­an­far­in ár,“ seg­ir í grein­ing­unni og er bent á hvernig sam­spil afurðaverðs í er­lendri mynt, gengi krón­unn­ar og magns hef­ur áhrif á út­flutn­ings­verðmæti eldisaf­urða í krón­um.

„Sú aukn­ing sem orðið hef­ur í út­flutn­ings­verðmæt­um eldisaf­urða á ár­inu má al­farið rekja til hækk­un­ar á afurðaverði, en markaðsverð á laxi hef­ur náð sögu­leg­um hæðum á ár­inu. Á sama tíma stóð út­flutt magn svo til í stað, ólíkt fyrri árum þegar stór­auk­in fram­leiðsla (magn) var meg­in­drif­kraft­ur auk­inna út­flutn­ings­verðmæta.“

Þá seg­ir að reikna megi við að fram­leiðslan auk­ist á ný á næstu árum og bent á mikla upp­bygg­ingu í grein­inni.

Mynd/​Radar­inn
mbl.is