Leifturljós eykur ljósátu í Bongo-háfum

Mynd tekin með svifsjá af ljósátutegundinni agga. Beiting leifturljóss á …
Mynd tekin með svifsjá af ljósátutegundinni agga. Beiting leifturljóss á Bongo-háfum getur aukið afla sem bætir til muna sýnatöku. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

Með ein­föld­um leift­ur­ljós­um sem komið er fyr­ir á svo­kölluðum Bongo-háf­um fæst meiri ljósáta. Þetta er meðal niðurstaðna rann­sókn­ar á sýna­töku ljósátu. Þá mun auk­inn afli gefa rétt­ari mynd af teg­unda­sam­setn­ingu og lengd­ar­dreif­ingu ljósátu en ef ljós hefðu ekki verið notuð.

Í færslu á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar seg­ir að vís­inda­grein vegna rann­sókn­ar­inn­ar hafi verið birt í vís­inda­tíma­rit­inu Journal of Plankt­on Rese­arch og eru höf­und­ar þau Ástþór Gísla­son, Hild­ur Pét­urs­dótt­ir og Páll Reyn­is­son.

Gögn­un­um sem liggja til grund­vall­ar var safnað í rann­sókna­leiðöngr­um stofn­un­ar­inn­ar árið 2016. „Ekki er talið að ljósát­an laðist að leift­ur­ljós­inu held­ur er lík­legt að ljósát­an nái síður að forðast háf­ana ef ljós­in eru notuð. Þannig geta niður­stöðurn­ar nýst í tengsl­um við rann­sókn­ir á ljósátu í framtíðinni,“ seg­ir í færsl­unni.

Útskýrt er að Bongo-háf­ar séu „til­tölu­lega ein­föld átu­söfn­un­ar­tæki, og vegna þess hversu meðfæri­leg­ir þeir eru, hafa þeir verið nýtt­ir af fjöl­mörg­um rann­sókna­stofn­un­um, m.a. Haf­rann­sókna­stofn­un, til að ná í átu­sýni. Óbreytt­ir eru þeir hins veg­ar ekki mjög hent­ug­ir til að safna stærri svif­dýr­um, eins og ljósátu, sem virðist ná að forðast háf­ana.“

Ljós hef­ur gefið góða raun

Árið 2018 voru gerðar til­raun­ir með því að beita ljós­bláu ljósi til að veiða ljósátu. Var hún lokkuð ná­lægt dælu sem dæl­ir henni að mestu lif­andi um borð í skip. 

Mark­mið leiðangr­anna var að prófa virkni dæl­unn­ar við ólík­ar aðstæður ásamt því að rann­saka teg­unda­sam­setn­ingu ljósátu og meðafla. Bet­ur gekk að veiða ljósát­una um haustið og var heild­arafli þá tölu­vert meiri, 13,1 tonn, en um sum­arið, 4,6 tonn.

mbl.is