Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis heldur opinn fund á mánudaginn þar sem fundarefnið er skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Gestir fundarins verða Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi og Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir sviðsstjóra frá Ríkisendurskoðun.
Fundurinn hefst kl. 09:30 og stendur til kl. 11:00.
Fundurinn verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum á mbli.is og á sjónvarpsrás Alþingis.