Vilja stöðva laxeldi í opnum sjókvíum

Arnarlax er með eldi í fjörðum Vestfjarða.
Arnarlax er með eldi í fjörðum Vestfjarða.

25 sam­tök nátt­úru­unn­enda skora á mat­vælaráðherra að stöðva lax­eldi í opn­um sjókví­um.

Áskor­un­in er gef­in út vegna um­hverf­islyss Arn­ar­lax í Arnar­f­irði í októ­ber en við slátrun úr sjókví varð ljóst að fyr­ir­tækið gat ekki gert grein fyr­ir af­drif­um 81.564 laxa hið minnsta að sögn Mat­væla­stofn­un­ar. 

„Villti laxa­stofn­inn á Íslandi tel­ur um 50.000 laxa. Slysaslepp­ing­in er grafal­var­legt um­hverf­is­slys sem Arn­ar­lax hef­ur verið sektað um 120 millj­ón­ir króna fyr­ir og mun hafa al­var­leg erfðafræðileg áhrif á villta laxa­stofna á Íslandi,“ seg­ir í til­kynn­ingu frá sam­tök­un­um. 

„Slysaslepp­ing­in er enn frem­ur staðfest­ing þess að fög­ur fyr­ir­heit fyr­ir­tækja í sjókvía­eldi eru fölsk og op­in­ber­ar hún einnig skeyt­ing­ar­leysi fyr­ir­tæk­is­ins gagn­vart hags­mun­um nátt­úr­unn­ar þegar ákveðið er að mót­mæla sekt­ar­greiðslunni.“

Vernda lög­býli

Sam­tök­in kalla eft­ir trú­verðugri áætl­un sem miðar að því að banna al­farið lax­eldi í sjókví­um hér við land.

„Á meðan verið er að stunda sjókvía­eldi á Íslandi þarf að gera það eft­ir allra ströngustu stöðlum. Þar ber helst að nefna NASCO staðlana sem ít­rekað hafa verið send­ir á stjórn­völd. Und­ir­rituð sam­tök og fyr­ir­tæki skora á mat­vælaráðherra að inn­leiða þessa staðla og gefa eng­an af­slátt af þeim á meðan verið er að stunda þessa meng­andi starf­semi í fjörðum lands­ins.“

Þá er einnig skorað á ferðamálaráðherra að vernda þau 2.250 lög­býli „sem treysta á laxveiðihlunn­indi og eru ómet­an­leg­ur part­ur af ferðaþjón­ustu lands­ins“.

Sam­tök­in sem skrifa und­ir áskor­un­ina eru NASF á Íslandi, Lands­sam­band Veiðifé­laga, Icelandic Wild­li­fe Fund, Lax­inn Lifi, Land­vernd, Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands, Ung­ir Um­hverf­issinn­ar, Lax-á, Veiðiflug­ur, Veiðivön, Hökl­ar, Six Ri­vers Proj­ect, Stóra-Laxá, Fuss, Laxá á Ásum, Star­ir, Miðfjarðará, Eleven Experience, Norðurá, Stanga­veiðifé­lag Reykja­vík­ur (SVFR), Hreggnasi, Vatns­dalsá, Veiðifé­lagið, Fish Partner og Flugu­búll­an.

mbl.is