Leita loðnu í von um aukinn kvóta

Rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar létu frá bryggju á mánudag og er vonast …
Rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar létu frá bryggju á mánudag og er vonast til að mæling á loðnustofni gefi tilefni til að h´kka ráðgjöf um hámarksafla. mbl.is/sisi

Vegna mis­ræm­is í niður­stöðu mæl­inga á veiðistofni loðnu í sept­em­ber síðastliðnum og ung­loðnu haustið 2021 er nú reynt að mæla stærð loðnu­stofns­ins á ný. Bundn­ar eru von­ir við að mæl­ing­in skili grund­velli til að hækka ráðgjöf um há­marks­afla vegna kom­andi vertíðar og þar með aukn­um veiðiheim­ild­um í teg­und­inni.

Rann­sókna­skip Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, Árni Friðriks­son og Bjarni Sæ­munds­son, létu frá bryggju á mánu­dag og kem­ur fram í til­kynn­ingu á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar að „veiðiskip munu jafn­framt taka þátt í verk­efn­inu og aðstoða við að af­marka dreif­ingu loðnu­stofns­ins sem flýt­ir fyr­ir mæl­ing­un­um rann­sókna­skip­anna. Þess­ar rann­sókn­ir Haf­rann­sókna­stofn­un­ar og út­gerða eru að frum­kvæði og kostaðar af út­gerðum upp­sjáv­ar­veiðiskipa.“

Gera áætlan­ir ráð fyr­ir að leiðang­ur­inn taki um 10 daga.

Mark­miðið mark­tæk mæl­ing

For­sögu máls­ins má rekja til þess að Haf­rann­sókna­stofn­un kynnti í byrj­un októ­ber ráðgjöf um há­marks­afla á loðnu­vertíðinni 2022/​2023 sem nam aðeins 218.400 tonn­um sem er 45,4% minni há­marks­afli en gert var ráð fyr­ir í upp­hafs­ráðgjöf stofn­un­ar­inn­ar sem byggðist á magni ókynþroska loðnu í haust­mæl­ing­um 2021. Nam upp­hafs­ráðgjöf­in 400 þúsund tonn­um.

„Þetta mis­ræmi í niður­stöðum milli ára er ástæða þess að reynt verður að ná mæl­ingu á stærð stofns­ins á þess­um tíma­punkti,“ seg­ir í til­kynn­ingu stofn­un­ar­inn­ar.

Þá er mark­mið leiðang­urs­ins í des­em­ber að reyna að fá mark­tæka mæl­ingu á stærð veiðistofns­ins sem gæti leitt til end­ur­skoðunar á veiðiráðgjöf fyr­ir kom­andi loðnu­vertíð. Auk þess er stefnt að því að „fá mynd af út­breiðslu veiðistofns­ins sem nýt­ist bæði við skipu­lagn­ingu á mæl­ing­um Haf­rann­sókna­stofn­un­ar á stærð stofns­ins í janú­ar næst­kom­andi svo og skipu­lagn­ingu flot­ans á veiðum næstu vik­urn­ar“.

mbl.is