Eggert Benedikt Guðmundsson leiðtogi á sviði sjálfbærrar þróunar hjá forsætisráðuneytinu og Jónína Lýðsdóttir sem er með meistaragráðu í ferðamálafræði eru farin hvort í sína áttina. Eggert hefur verið áberandi í viðskiptalífinu en hann var einu sinni forstjóri N1 og líka stjórnarmaður hjá Landsneti.
Hjónin eru líka þekkt fyrir það að vera foreldrar leikkonunnar Unnar Eggertsdóttur sem hefur gert það gott í Bandaríkjunum.
Hjónin bjuggu á ættaróðali Eggerts í Skerjafirði en húsið var auglýst til sölu fyrir ári síðan. Afi Eggerts Benedikts, Eggert Claessen bankastjóri og hæstaréttarlögmaður, eignaðist húsið 1922. Lét hann byggja við húsið og var þeim breytingum lokið árið 1924. Hann nefndi hús sitt Reynistað eftir samnefndu stórbýli í Skagafirði þaðan sem hann var ættaður. Elsti hluti hússins er talinn vera byggður 1874.
Frænkur Benedikts, Lára Björg Björnsdóttir aðstoðarmaður Katrínar Jakobsdóttur, og systir hennar, Birna Anna Björnsdóttir rithöfundur í New York, keyptu ættaróðalið ásamt eiginmönnum sínum eins og Smartland greindi frá á dögunum.
Smartland óskar Eggerti og Jónínu góðs gengis!