„Óvanalega viðamikið frávik frá staðreyndum“

Kristinn H. Gunnarsson var þingmaður Vestfjarðakjördæmis og Norðvesturkjördæmis frá 1991 …
Kristinn H. Gunnarsson var þingmaður Vestfjarðakjördæmis og Norðvesturkjördæmis frá 1991 til 2009. mbl.is/Golli

Krist­inn H. Gunn­ars­son fyrr­ver­andi alþing­ismaður seg­ir í pistli á Bæj­ar­ins besta að staðhæf­ing­ar fram­kvæmda­stjóra Vernd­ar­sjóðs villtra laxa­stofna um ástand hafs­botns­ins í Dýraf­irði reyn­ist ein­fald­lega ósann­ar þegar op­in­ber gögn séu skoðuð. 

Elv­ar Örn Friðriks­son, fram­kvæmda­stjóri Vernd­ar­sjóðs villtra laxa­stofna, tók sterkt til orða í viðtali á Hring­braut á dög­un­um þegar hann ræddi um lax­eldi í Dýraf­irði á Vest­fjörðum.  Haf­s­botn­inn í Dýraf­irði und­ir lax­eldisk­ví­un­um væri „ein stór bakt­eríu­motta, þar sem ekk­ert annað þrífst, steindauður botn, úr­gang­ur í fisk­un­um og fóður­leyf­ar.“

Krist­inn seg­ir „óvana­legt að verða vitni að jafn viðamiklu frá­viki frá staðreynd­um eins og raun­in varð í um­ræddu Hring­braut­ar­viðtali sem rit­stjóri Frétta­blaðsins stýrði.“

Svæðin öll fengið hæstu ein­kunn

Krist­inn bend­ir í pistl­in­um á að rík­is­stofn­an­ir hafi eft­ir­lit með þess­um iðnaði og þykir ekki mikið koma til þeirra mynda sem Elv­ar vísaði til í sín­um mál­flutn­ingi. 

Fram­kvæmda­stjór­inn vísaði máli sínu til stuðnings aðeins til mynda sem kaj­akræðari seg­ist hafa tekið ein­hvers staðar á Dýraf­irði. Ekki hef­ur verið gefið upp hvar og hvenær þær mynd­ir voru tekn­ar.

Krist­inn kýs held­ur að skoða hvað Um­hverf­is­stofn­un seg­ir um ástand hafs­botns­ins und­ir lax­eldisk­ví­um í Dýraf­irði. 

Svo vill til að þess­ar full­yrðing­ar fram­kvæmda­stjór­ans er hægt að staðreyna. Það er lög­um sam­kvæmt fylgst með líf­rík­inu, ástandi þess fyr­ir upp­haf eld­is og breyt­ing­um á því meðan á eldi stend­ur. Á vef Um­hverf­is­stofn­un­ar eru birt­ar upp­lýs­ing­ar um kröf­ur og eft­ir­lit ,svo og eft­ir­lits­skýrsl­ur og skýrsl­ur um mæl­ing­ar og vökt­un. Starfs­leyfið sjálft er þar einnig aðgengi­legt og get­ur hver sem er kynnt sér það og önn­ur gögn,“ skrif­ar Krist­inn og hjá hon­um kem­ur fram að svæðin þrjú í firðinum hafi öll fengið hæstu ein­kunn. 

Það er ólíku sam­an að jafna op­in­beru eft­ir­liti þar sem skýrsl­ur og önn­ur gögn eru op­in­ber og öll­um aðgengi­leg og svo leynd­ar­dóms­full­um mynd­brot­um,“ skrif­ar Krist­inn einnig.

mbl.is