Deplar Farm er á meðal allra bestu hótela í Evrópu að mati ferðatímaritsins Condé Nast Traveller. Tímaritið gaf nýverið út gulllista sinn fyrir árið 2023 og hlotnaðist Deplum að komast á þann lista.
Á listanum eru flottustu og fínustu hótel Evrópu, flestöll 5 stjörnu hótel, sem bjóða upp á allt það besta.
Um Depla segir í umsögn CN Traveller að andstæður mætist á hótelinu, ískuldi og sjóðandi hiti. Fimm stjörnu lúxus á afskekktum stað á Íslandi.
Deplar eru vinsæll áfangastaður ríka og fræga fólksins sem leggur leið sína til Íslands. Fyrr á þessu ári dvaldi til dæmis Mark Zuckerberg, forstjóri Meta, á hótelinu.