Mikið um laxalús í Dýrafirði

Frá eldi Arctic Fish í Dýrafirði.
Frá eldi Arctic Fish í Dýrafirði. Ljósmynd/Ágúst Atlason

Laxal­ús hef­ur tekið að fjölga und­an­far­in miss­eri á lax­fisk­um í sjókví­um á Vest­fjörðum. Sam­kvæmt mæla­borði fisk­eld­is var í nóv­em­ber að meðaltali 1,41 kven­lús á hverj­um fiski í sjókví­um á Íslandi. Tal­an er hins veg­ar mun hærri þar sem lús­in er þar sem hana er alla jafna ekki að finna á Aust­fjörðum.

Ekki liggja fyr­ir töl­ur fyr­ir lands­hluta í nóv­em­ber en tal­an fyr­ir Vest­f­irði á októ­ber er 0,94 kven­lús á fiski. Það er ekki ýkja mikið þar sem áhættu­mörk í mörg­um ríkj­um eru 1,5 til 3 full­orðnar lýs á hverj­um fiski.

Staðan er hins veg­ar allt önn­ur þegar skoðuð er staðan eft­ir fjörðum og sést að í Dýraf­irði voru 3,94 kven­lýs á hverj­um fiski í októ­ber.

Fjöldi kvenlúsa á fiski í Dýrafirði rauk upp úr öllu …
Fjöldi kven­lúsa á fiski í Dýraf­irði rauk upp úr öllu valdi í októ­ber. Skjá­skot/​Mæla­borð fisk­eld­is

Beittu slice

Í bréfi til Ísa­fjarðarbæj­ar dag­settu 12. októ­ber síðastliðinn til­kynnti Arctic Fish að þörf væri á að meðhöndla gegn laxal­ús með ema­mect­in benzoa­te eða svo­kölluðu „slice“ í kvía­stæðum við Hvanna­dal í Tálknafirði, Kvíg­ind­is­dal í Pat­reks­firði og Hvestu­dal í Arnar­f­irði. Átti meðhöndl­un að vera lokið 21. nóv­em­ber.

„Þegar upp koma aðstæður sem þess­ar sæk­ir Arctic Fish um leyfi til lyfjameðhöndl­un­ar til Mat­væla­stofn­un­ar. Fiski­sjúk­dóm­a­nefnd tek­ur málið fyr­ir og met­ur með til­liti til um­hverf­is­skil­yrða, fiskistærðar, stöðu lúsa­smita og vænt­an­legr­ar þró­un­ar á svæðinu,“ seg­ir í bréf­inu.

Um­hverf­is­stofn­un sagðist í byrj­un árs ætla að skoða um­hverf­isáhrif notk­un­ar lyfja gegn laxal­ús hér á landi, þar með talið slice.

mbl.is