Jónbjörn var enga stund að tegundagreina þverhyrnu

Þverhyrna (Lophodolos acanthognadus) veiddist í fyrsta sinn í haustrallinu.
Þverhyrna (Lophodolos acanthognadus) veiddist í fyrsta sinn í haustrallinu. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun: Svanhildur Egilsdóttir.

Þver­hyrna eða Loph­odo­los acant­hognadus veidd­ist í fyrsta sinn í efna­hagslög­sögu Íslands í síðasta haustr­alli Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. Grein­ing sjald­gæfra teg­unda get­ur tekið nokk­urn tíma en að þessu sinni gat Jón­björn Páls­son greint teg­und­ina við fyrstu sýn.

Þetta er meðal þess sem fram kem­ur í til­kynn­ingu á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.

Þar seg­ir að þver­hyrna til­heyri hyrnuætt af ætt­bálki kjaftag­elgna en flest­ir fisk­ar þessa ætt­bálks eru djúp­fisk­ar, ým­ist botn­fisk­ar eða botn- og miðsævis­fisk­ar.

Fiskurinn vakti skiljanlega áhuga vísindamanna.
Fisk­ur­inn vakti skilj­an­lega áhuga vís­inda­manna. Ljós­mynd/​Haf­rann­sókna­stofn­un

Al­gengt er að mis­al­geng­ar teg­und­ir veiðist í þeim hluta haustr­alls­ins þar sem togað er á miklu dýpi. Í þetta sinn var togað á 1.400 metra dýpi. „Þegar togað er svona djúpt finn­ast fjöl­marg­ar teg­und­ir sem eru lítt þekkt­ar, þótt sum­ar séu nokkuð al­geng­ar. Einnig fást sjald­gæf­ar teg­und­ir og sum­ar þeirra hafa fund­ist aðeins nokkr­um sinn­um á þeim 25 árum sem haustr­allið hef­ur farið fram,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Vak­in er at­hygli á að sjald­gæf­ar teg­und­ir sem veiðist í leiðöngr­um Hafró séu fryst­ar og skoðaðar nán­ar við betri aðstæður á rann­sókn­ar­stofu.

„Jón­björn Páls­son hef­ur oft verið okk­ur inn­an hand­ar við grein­ing­ar. Venju­lega kost­ar þessi grein­ing­ar­vinna þó nokkra yf­ir­legu en í þetta sinn þurfti Jón­björn ekki annað en að berja fisk­inn aug­um í nokkr­ar sek­únd­ur til að þekkja teg­und­ina. Kom þá upp úr dúrn­um að þessi teg­und hef­ur verið þeim Gunn­ari Jóns­syni kunn í nokk­urn tíma en hún hef­ur veiðst áður utan ís­lenskr­ar efna­hagslög­sögu, t.d. í leiðöngr­um í Græn­lands­hafi. Í ár veidd­ist þver­hyrna inn­an ís­lenskr­ar efna­hagslög­sögu og get­ur hún því hér með tal­ist til ís­lenskr­ar fiska­fánu,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Þeir Jón­björn og Gunn­ar eru báðir meðal höf­unda bók­ar­inn­ar Íslensk­ir fisk­ar.

mbl.is