„Stelpur, farið varlega yfir hátíðirnar“

Bachelor-stjarnan Tayshia Adams.
Bachelor-stjarnan Tayshia Adams. Skjáskot/Instagram

Bachelor-stjarnan Tayshia Adams er með mikilvæg skilaboð fyrir konur inn í hátíðirnar framundan, en hún deildi skemmtilegu myndskeiði á samfélagsmiðlinum TikTok þar sem hún hvatti konur til að forðast það að svara öllum jólakveðjum frá fyrrverandi elskhugum. 

Í myndskeiðinu situr Adams á kaffihúsi og dansar við lagið Nope með rapparanum So Supa, en lagið hefur verið vinsælt á miðlinum þar sem orðið „nei“ er endurtekið. Neðst á skjánum skrifaði hún: „Þegar þeir reyna að ná í þig með jólakveðju.“

@tayshiaadams

Ladies, stay safe this holiday season🤪

♬ NOPE SO SUPA - SO SUPA ⚡️🥷

Hef enn ekki fundið hinn eina sanna

Adams virðist hafa fengið alveg nóg af fyrrverandi elskhugum og hefur engan áhuga á því að kveikja upp í gömlum neistum. Ástarlíf Adams hefur verið áberandi í sviðsljósinu, en hún keppti um hjarta Colton Underwood í 23. þáttaröð The Bachelor, en í lokaþættinum stóð valið á milli Adams og Cassie Randolph þar sem Underwood valdi þá síðarnefndu. 

Síðar fór hún í sjöttu þáttaröð Bachelor in Paradise þar sem hún féll fyrir John Paul Jones. Þau hættu þó fljótt saman. Hún ákvað því að fara aftur í The Bachelorette þar sem hún kynntist og trúlofaðist Zac Clark, en þau slitu trúlofun sinni í nóvember á síðasta ári. 

mbl.is