Sér ekki eftir sambandsslitunum

Luca Bish og Gemma Owen kynntust í raunveruleikaþáttunum Love Island.
Luca Bish og Gemma Owen kynntust í raunveruleikaþáttunum Love Island. Skjáskot/Instagram

Love Island-stjarnan Gemma Owen segist ekki sjá eftir neinu eftir óvænt sambandsslit hennar og Luca Bish í síðasta mánuði. Owen og Bish þegar þau tóku þátt í bresku raunveruleikaþáttunum Love Island, en þau vöktu mikla athygli og höfnuðu í öðru sæti síðustu þáttaraðar. 

Mikil umræða skapaðist í kringum þátttöku Owen í Love Island, en hún vakti strax mikla athygli fyrir að vera dóttir fyrrverandi fótboltamannsins Michael Owen sem var allt annað en sáttur við ákvörðun dóttur sinnar til að byrja með. 

Pabbinn tók vel á móti nýja kærastanum

Með tímanum virtist fótboltakappinn þó hafa tekið ákvörðun dóttur sinnar í sátt, en þegar hún sneri aftur heim eftir ástarævintýrið tók hann vel á móti þeim og bauð Bish velkominn í fjölskylduna. 

Leiðir Owen og Bish skildu hins vegar fljótlega eftir að þau komu heim. Á Instagram-reikningi sínum sagði Owen frá því að sambandið hefði ekki verið eins eftir þættina og á endanum hafi þau komist að þeirri niðurstöðu að fara hvort í sína áttina eftir þriggja mánaða samband.  

Hefur enga eftirsjá

Í samtali við Tatler segist Owen ánægð með að vera einhleyp og hafi enga eftirsjá. „Þetta hefur verið mjög gott ár sem ég mun örugglega aldrei gleyma. Ég sé ekki eftir neinu, sem er mikilvægt,“ sagði hún. 

Í viðtalinu talaði Owen einnig um að það hafi tekið á að vera undir smásjá almennings. „Fólk efast um ákvarðanir þínar eða heldur að það viti hvað er að gerast í lífi þínu þegar það veit kannski ekki alla söguna,“ útskýrði Owen og bætti við að hún væri spennt fyrir nýju ári og nýjum tækifærum.

mbl.is