Áframhaldandi ófærð suðaustanlands

Björgunarsveitin Víkverji í Vík í Mýrdal að störfum fyrir nokkrum …
Björgunarsveitin Víkverji í Vík í Mýrdal að störfum fyrir nokkrum dögum. Ljósmynd/Víkverji

Sunnan undir Vatnajökli er hvasst og hríðarbylur. Áframhaldandi ófærð verður suðaustanlands í dag. Þegar kemur fram á morgundaginn eru horfur á blindhríð austan Öræfa, allt austur á Hérað.

Spáð er norðaustanátt og 13-20 m/s. Á Steingrímsfjarðarheiði og á Þröskuldum er vaxandi hríð og blinda, að sögn Einars Sveinbjörnssonar, veðurfræðings Vegagerðarinnar. 

Veðurvefur mbl.is 

mbl.is