Fyrrverandi forsetafrúnni Michelle Obama þótti eiginmaður sinn, Barack Obama, óþolandi fyrstu tíu árin af hjónabandi þeirra. Þessu greindi hún nýverið frá í viðtali hjá Revolt TV, en hún segir ástæðuna hafa verið misþungar byrðar sem þau báru.
Michelle ræddi fyrstu ár hjónanna af mikilli hreinskilni í viðtalinu, en hún segir uppeldi dætra þeirra tveggja hafa tekið toll af hjónabandi þeirra fyrstu tíu árin þegar þær voru ungar. Hún segir ójafnvægi hafa verið í uppeldinu, en þó þau hafi bæði verið á framabraut hafi hún fyrst og fremst séð um dætur þeirra á meðan stjórnmálaferill Barack blómstraði.
Í viðtalinu segist hún hafa verið ósátt við það að eiginmaður hennar gæti eytt tíma í að fara í golf eða ferðast með vinnunni á meðan hún átti í fullu fangi með að finna jafnvægi milli vinnu sinnar sem lögfræðingur og uppeldi barnanna þeirra.
„Hjónaband er ekki 50/50 - aldrei. Stundum ég ég 70 og hann 30. Það koma tímar þar sem hann er 60 og ég 40, en getið þið hvað? Við höfum verið gift í 30 ár,“ sagði Michelle og bætti við að tíu slæm ár af 30 væri ekki svo slæmt.
Þó Obama-hjónin virðist alltaf jafn ástfangin hafa þau gengið í gegnum súrt og sætt saman. Þau hafa bæði talað opinskátt um erfiðleikana sem hafa fylgt hjónabandinu, en Barack greindi frá hjónabandserfiðleikum þeirra innan veggja Hvíta hússins í bókinni A Promised Land.