Árni Friðriksson til loðnukönnunar

Bæði skip Hafrannsóknastofnunar munu halda til loðnumælinga í kjölfar könnunarleiðangurs …
Bæði skip Hafrannsóknastofnunar munu halda til loðnumælinga í kjölfar könnunarleiðangurs Árna Friðrikssonar. mbl.is/sisi

Til að tryggja að vetr­ar­mæl­ing­in á loðnu­stofn­in­um verði mark­tæk fer nú fram könn­un­ar­leiðang­ur þar sem safnað er upp­lýs­ing­um um göng­ur og dreif­ingu loðnu­stofns­ins norður og aust­ur af land­inu. Síðasta mæl­ing reynd­ist ekki mark­tæk.

Árni Friðriks­son, rann­sókna­skip Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, lagði frá bryggju í Hafnar­f­irði í morg­un og fer loðnu­könn­un­in fram í sam­starfi við út­gerðir upp­sjáv­ar­veiðiskipa sem greiða fyr­ir þann auka­kostnað Haf­rann­sókna­stofn­un­ar sem af henni hlýst, að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.

Þar seg­ir að upp­lýs­ing­un­um sem safnað er er ætlað að „hjálpa til að ákveða, hvenær það sé lík­leg­ast til ár­ang­urs að fara til mæl­inga á stærð loðnu­stofns­ins og ná sem markverðustu mæl­ingu á hon­um. Eins verði hægt að ákv­arða það magn sem komið er inn á loðnumiðin og mögu­lega það magn sem kann að ganga snemma inn í hlý­sjó­inn suðaust­an­lands og tap­ast af mæl­i­svæðinu, ef til þess kæmi.“

Þriðja mæl­ing­in

Gert er ráð fyr­ir að þessi könn­un taki um eina til tvær vik­ur og í kjöl­farið verður haldið til hefðbund­inna stofn­mæl­inga á báðum skip­um Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. Þær mæl­ing­ar munu svo liggja til grund­vall­ar að loka­veiðiráðgjöf á loðnu á þess­ari vertíð.

Bundn­ar eru von­ir við að tak­ist að ná mark­tækri mæl­ingu sem skili af sér grund­völl fyr­ir aukn­um loðnu­kvóta, þó get­ur mæl­ing sem þessi leitt til þess að veiðiráðgjöf verði lækkuð eins og gerðist í kjöl­far vetr­ar­mæl­ingu síðasta árs.

Kom­andi mæl­ing verður sú þriðja sem fer fram vegna yf­ir­stand­andi vertíðar en auka­mæl­ing sem farið var í í des­em­ber síðastliðnum skilaði ekki mark­tæk­um niður­stöðum. Auka­mæl­ing­in kom til vegna mik­ils mis­ræm­is í niður­stöðu mæl­inga á veiðistofni loðnu í sept­em­ber síðastliðnum og ung­loðnu haustið 2021 sem leiddi til langt­um minni veiðiráðgjöf en bú­ist var við.

mbl.is