Framhaldsskólanám í fiskeldi hefst í haust

Björn Hembre Arnarlax, Gauti Geirsson Háafelli, Heiðrún Tryggvadóttir MÍ, Stein …
Björn Hembre Arnarlax, Gauti Geirsson Háafelli, Heiðrún Tryggvadóttir MÍ, Stein Ove Tveiten ArcticFish, Sigríður Kristjánsdóttir og Guðrún Anna Finnbogadóttir Vestfjarðastofu. Merking: Ljósmynd/Vestfjarðastofa Ljósmynd/Vestfjarðastofa

Ný­verið und­ir­ritaði Mennta­skól­inn á Ísaf­irði und­ir sam­starfs­samn­ing við þrjú fisk­eld­is­fyr­ir­tæki á Vest­fjörðum, Arctic Fish, Arn­ar­lax og Háa­fell, um fram­halds­skóla­nám í fisk­eldi í sam­starfi við Vest­fjarðastofu.

Fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­in hafa lagt til stofn­fram­lag og hefst kennsla haustið 2023, en mik­ill skort­ur hef­ur verið á menntuðu starfs­fólki vegna þess öra vaxt­ar sem hef­ur átt sér stað í fisk­eld­inu í lands­hlut­an­um, að því er fram kem­ur í frétta­til­kynn­ingu frá Vest­fjarðar­stofu.

Gert er ráð fyr­ir að námið verði sjálf­bært hvað varðar rekstr­ar­fé og fer verk­leg kennsla og kynn­ing­ar á starfs­vett­vangi í sam­starfi við fyr­ir­tæk­in.

Í fleiri skól­um

„Ný náms­braut sem verður leidd af Mennta­skól­an­um á Ísaf­irði ber yf­ir­skrift­ina „hafið, um­hverfið og auðlind­ir.“ Braut­in sam­an­stend­ur af stúd­ents­braut með staðgóða þekk­ingu á um­hverf­inu, auðlind­um hafs­ins og fisk­eldi og inn­an braut­ar­inn­ar er eins árs nám sem kenn­ir grunnþætti til starfa í fisk­eldi,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Braut­in verður þó ekki aðeins kennd á Ísaf­irði og mun Fjöl­brauta­skól­inn á Snæ­fellsnesi, Fjöl­brauta­skól­inn á Sauðár­króki og Verk­mennta­skóli Aust­ur­lands bjóða nem­end­um að stunda námið. Gert er ráð fyr­ir að skól­arn­ir sam­nýti þekk­ingu en verk­legt nám fer fram á hverj­um stað fyr­ir sig. Með þess­ari aðferð er von­ast til að sér­fræðiþekk­ing bygg­ist upp í lands­fjórðung­un­um sem styrki einnig full­orðins­fræðslu fræðslumiðstöðva lands­ins í tengsl­um við fisk­eldi.

Náms­braut­in er sögð afrakst­ur grein­ing­ar­vinnu Fræðslumiðstöðvar Vest­fjarða á mennt­un­arþörf í fisk­eldi í Evr­ópu­verk­efn­inu Blue Mentor.

Upp­bygg­ing í nærum­hverfi

„Skól­inn fagn­ar sam­starfi við fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­in í nærum­hverf­inu sem er mik­il­vægt í ljósi framþró­un­ar í fisk­eldi,“ seg­ir Heiðrún Tryggva­dótt­ir, skóla­meist­ari í MÍ.

„Fisk­eldi bygg­ir á þekk­ingu og er þetta mik­il­væg­ur liður í því að mennta hæft starfs­fólk. Það er sér­stak­lega ánægju­legt að það sé hér á svæðinu, en við hjá Háa­felli leggj­um mikið upp úr að innviðir og þjón­usta bygg­ist upp í nærum­hverfi grein­ar­inn­ar,” seg­ir Gauti Geirs­son, fram­kvæmda­stjóri Háa­fells.

mbl.is