Drangey mótmælir fyrirætlan matvælaráðherra

Smábátasjómenn í Skagafirði hafa eitt og annað að setja út …
Smábátasjómenn í Skagafirði hafa eitt og annað að setja út á áform stjórnvalda um breytingar á strandveiðikerfinu og friðun hafsvæða. mbl.is/Björn Jóhann

„Drangey-smábátafélag Skagafjarðar mótmælir þeirri fyrirætlan matvælaráðherra að hverfa frá þeirri meginstefnu um strandveiðar að þær séu heimilar allt að 12 veiðidaga á mánuði fjóra mánuði á ári. Með því er stefnt að því að innleiða aftur „ólympiskar“ veiðar á hverju veiði-svæði sem er bæði óhagkvæmt og hættulegt,“ segir í ályktun Drangeyjar, smábátafélags Skagafjarðar, sem saþykkt var á félagsfundi nýverið.

Skiptar skoðanir eru um upptöku svæðisskiptingar strandveiða á nýjan leik og tilheyrandi breytinga á strandveiðikerfinu.

Þá skora félagsmenn Drangeyjar „á stjórnvöld að tryggja að 12 daga veiðireglan verði í gildi allt strandveiðitímabilið 2023 enda hefur Hafrannsóknastofnun lýst því yfir að 2.000 til 3.000 tonna frávik á strandveiðivertíð hafi takmörkuð áhrif á þorskstofninn, auk þess sem breytileiki í aflareglu (20-22%) rúmar væntanlegan heildarafla á strandveiðum hvers árs.“

Gagnrýna botndregin veiðarfæri

Í ályktuninni kveðst félagið styðja áform um að friða fleiri svæði hafsins umhverfis Ísland, en gera anmarka við hvernig standi til að framkvæma friðunina.

Mótmælir Drangey „harðlega þeirri hugmynd að setja veiðar með botndregnum veiðarfærum og handfæraveiðar undir sama hatt þegar kemur að verndun á lífríki sjávarbotnsins, enda stríðir það gegn alþjóðlegum sjónarmiðum og raunar gegn heilbrigðri skynsemi. Þá bendir félagið á að rík ástæða er til að auka friðun lífríkis á grunnslóð, t.d. með því að takmarka veiðar með botndregnum veiðarfærum inn á fjörðum og flóum.“

Þá lýsir félagið „furðu sinni á þeirri fyrirætlan stjórnvalda að auka veiðar með botntrolli nálægt landi, jafnvel upp að 3 mílna landhelgi í nafni umhverfisverndar og minni kolefnislosunar við fiskveiðar, sbr. frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997 (aflvísir). Fremur ætti að stefna að því að veiðar með slíkum veiðarfærum færu að mestu leyti fram utan 12 mílna landhelgismarka.“

mbl.is