Rannsökuðu hegðun fiska við botnvörpuveiðar

Rannsökuð var hegðun fiska við veiða með botnvörpu.
Rannsökuð var hegðun fiska við veiða með botnvörpu. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun

Nýrri rann­sókn er ætlað að auka þekk­ingu á hegðun al­gengra born­fiska fiska við veiðar með botn­vörpu. Rann­sókn­in fór fram á rann­sókna­skip­inu Árna Friðriks­syni og var leiðang­urs­stjóri Har­ald­ur Arn­ar Ein­ars­son, sér­fræðing­ur í veiðafær­a­rann­sókn­um hjá Haf­rann­sókna­stofn­un.

Fram kem­ur á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar að talið sé að rann´sokn­in sýni „glöggt hvernig hegðun fiska af mis­mun­andi teg­und­um og stærð get­ur haft áhrif á hvernig þeir kom­ist und­an vörp­unni. Á venju­leg­um botn­vörp­um er hefðbundið að nota svo­kallaða „rockhopp­era“, sem eru einskon­ar gúmmí­hjól sem þó rúlla ekki eft­ir botn­in­um. Fisk­ar geta smogið á milli eða und­ir hjól­in en oft­ast lyfta fisk­arn­ir sér upp og hafna í vörp­unni. Þekk­ing á viðbrögðum fiska við botn­vörp­unni get­ur því skipt miklu við hönn­un veiðarfæra.“

Rann­sókn­in fór fram með því að sett­ir voru safn­pok­ar á báða vængi og fyr­ir miðju botn­vörp­unn­ar að ut­an­verðu. Var til­gang­ur­inn að sjá hvar fisk­ur fór und­ir veiðarfærið og hvort væri mun­ur eft­ir teg­und­um eða stærð.

„Smár þorsk­ur og ýsa fór að mestu und­ir vörp­una fyr­ir miðju en stærri fisk­ar af þess­um teg­und­um frek­ar við vængi. Meiri breyti­leiki kom í ljós hjá flat­fisk­um. Þó mátti sjá að skötu­sel­ur fór oft­ast und­ir vörp­una við vængi eða í nær 80% til­fella,“ seg­ir á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.

Unnið að annri vís­inda­grein

Vís­inda­menn fjalla um rann­sókn­ina í vís­inda­grein­inni „In­ferr­ing fish behavi­our at the trawl mouth from escape locati­on“ sem birt hef­ur verið í vís­inda­tíma­rit­inu Aquatic Bi­ology.

Rann­sókn­in var unn­in í sam­starfi við vís­inda­menn við Haf­rann­sókna­stofn­un­ina í Nor­egi og Haf­rann­sókna­stofn­un­ina í Kan­ada. Er nú unnið að ann­arri vís­inda­grein úr sömu gögn­um þar sem fjöldi fiska af þess­um teg­und­um sem fer und­ir vörp­una er kannaður og gerður sam­an­b­urður á degi og nóttu.

mbl.is