Finna þarf áhugasamt útgerðarfélag til að taka þátt í að „kvenna/kvára“ fyrsta togarann í íslenskum sjávarútvegi þannig að konur eða kvárar séu að minnsta kosti 30% starfsfólks um borð.
Jafnframt þarf að útvíkka gildissvið löggjafar um kynjakvóta í stjórnum þannig að skyldan nái til hagsmuna- og félagasamtaka yfir ákveðinni stærð og kveði þannig á um að eitt kyn (karl, kona eða kvár) skuli ekki vera hærra hlutfall en 60% stjórnar.
Þetta er meðal bráðabrigðatillagna starfshópa stefnumótunarverkefnisins Auðlindarinnar okkar.
Í kafla um jafnréttismál í kynningu á tillögunum, sem birt var á vef Matvælaráðuneytisins nýverið, er vakin athygli á því að til séu greiningar á stöðu kvenna í sjávarútvegi og að verulega halli á þátttöku þeirra þegar kemur að störfum til sjós. „Átök og vitundarvakning um konur til sjós virðast enn sem komið er hafa skilað takmörkuðum árangri í þá veru að fjölga konum til sjós.“
Þá hefur konum í stöðu millistjórnenda fjölgað í sjávarútvegi undanfarin ár „en enn fer lítið fyrir konum í æðstu stjórnendastöðum.“ Lagt er til að haldið verði áfram að greina stöðu kvenna í sjávarútvegi, auk þess sem greiningin verði útvíkkuð yfir á öll kyn, kynhneigð og innlendan sem erlendan uppruna.
Lagt er til að fyrirtæki í sjávarútvegi verði hvött til að auglýsa laus störf í sjávarútvegi. „Hæft fólk af hvaða kyni sem er mun ekki sækja um störf sem þau vita ekki af.“