Veikburða og brotakennt eftirlit með sjókvíaeldi

Guðmundur Björgvin Helgason, ríkisendurskoðandi, skilaði í dag skýrslu um stjórnsýslu …
Guðmundur Björgvin Helgason, ríkisendurskoðandi, skilaði í dag skýrslu um stjórnsýslu og eftirlit sjókvíaeldis á Íslandi.

„Stjórn­sýsla og eft­ir­lit með sjókvía­eldi hafa reynst veik­b­urða og brota­kennd og vart í stakk búin til að tak­ast á við auk­in um­svif grein­ar­inn­ar síðustu ár.“

Þetta er niðurstaða stjórn­sýslu­út­tekt­ar Rík­is­end­ur­skoðunar á laga­fram­kvæmd, stjórn­sýslu og eft­ir­liti með sjókvía­eldi hér á landi. Í skýrsl­unni „Sjókvía­eldi: laga­fram­kvæmd, stjórn­sýsla og eft­ir­lit“ er að finna 23 ábend­ing­ar um úr­bæt­ur sem stofn­un­in tel­ur að þurfi að gera á stjórn­sýslu mála­flokks­ins.

„Fá­heyrt er að sett­ar séu fram svo marg­ar ábend­ing­ar í stjórn­sýslu­út­tekt­um stofn­un­ar­inn­ar,“ seg­ir í til­kynn­ingu Rík­is­end­ur­skoðunar. Stofn­un­in kynnti niður­stöður sín­ar fyr­ir stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd Alþing­is í morg­un.

Unnið gegn ávinn­ingi rík­is­sjóðs

Rík­is­end­ur­skoðun full­yrðir að „samþjöpp­un eign­ar­halds, stefnu­laus upp­bygg­ing og rekst­ur sjókvía á svæðum sem vinna gegn því að auðlind­in skili há­marks ávinn­ingi fyr­ir rík­is­sjóð hef­ur fest sig í sessi án mik­ill­ar umræðu eða at­beina stjórn­valda. Verðmæt­um í formi eld­is­svæða og leyfa til sjókvía­eld­is hef­ur verið út­hlutað til lengri tíma án end­ur­gjalds og dæmi eru um að upp­bygg­ing sjókvía­eld­is skar­ist á við aðra mik­il­væga nýt­ingu strandsvæða, svo sem sigl­inga­leiðir og helg­un­ar­svæði fjar­skipta- og raf­orku­strengja.“

Þó nokkr­ar breyt­ing­ar voru gerðar á lagaum­hverfi sjókvía­eld­is árin 2014 og 2019. Breyt­ing­arn­ar skiluðu þó tak­mörkuðum ár­angri að mati Rík­is­end­ur­skoðunar. „Hvorki tókst að skapa aukna sátt um grein­ina né hef­ur eld­is­svæðum eða heim­ild­um til að nýta leyfi­leg­an líf­massa á til­tekn­um hafsvæðum verið út­hlutað með útboði eins og til stóð.“ Rík­is­end­ur­skoðun tel­ur Mat­vælaráðuneytið þurfi að grípa til ráðstaf­anna til að tryggja af­mörk­un og útboð eld­is­svæða

Ríkisendurskoðun segir fáheyrt að jafn margar ábendingar um þörf á …
Rík­is­end­ur­skoðun seg­ir fá­heyrt að jafn marg­ar ábend­ing­ar um þörf á úr­bót­um sé í stjórn­sýslu­út­tekt­um stofn­un­ar­inn­ar og í til­felli skýrslu um sjókvía­eldi. mbl.is/Þ​or­geir Bald­urs­son

Jafn­framt seg­ir að laga­breyt­ing­arn­ar gerðu ekki leyf­is­veit­inga­ferli Mat­væla­stofn­un­ar og Um­hverf­is­stofn­un­ar skil­virk­ari, að eft­ir­lit sé of dreift og háð aðgengi að búnaði og starfs­fólki fisk­eld­is­fyr­ir­tækja.

Sam­kvæmt út­tekt­inni er mik­il skör­un milli krafna starfs- og rekstr­ar­leyfa vegna sjókvía­eld­is „en at­hygli vek­ur hversu tak­markað form­legt sam­starf ráðuneyta um­hverf­is og mat­væla hef­ur verið.“ Tel­ur Rík­is­end­ur­skoðun ástæðu til að skoða hvort til­efni sé til að færa alla leyf­is­veit­ingu í fisk­eldi und­ir eitt stjórn­vald eða „mynda öfl­ug þver­stofnana­leg teymi um leyf­is­veit­ing­arn­ar.“

Ómark­viss­ar aðgerðir

Jafn­framt þurfi að efla eft­ir­lit Mat­væla­stofn­un­ar, taka starf­semi Um­hverf­is­sjóðs sjókvía­eld­is til skoðunar og end­ur­skoða lög um gjald­töku vegna fisk­eld­is í sjó og fisk­eld­is­sjóð. Tel­ur Rík­is­end­ur­skoðun að „beit­ing þving­unar­úr­ræða [sé] ómark­viss þrátt fyr­ir al­var­leg og ít­rekuð frá­vik frá ákvæðum leyfa. Til­efni er til að efla eft­ir­lit Mat­væla­stofn­un­ar og tryggja að gjald­taka stofn­un­ar­inn­ar standi und­ir kostnaði vegna þess.“

Tel­ur stofn­un­in að skoða þurfi „hvort og hvernig megi efla mót­vægisaðgerðir og vökt­un vegna stroks og tryggja mark­vissa beit­ingu þving­unar­úr­ræða, sekta og aft­ur­köll­un rekstr­ar- og starfs­leyfa í þeim til­fell­um sem ákvæðum þeirra er ekki fylgt.“

Nauðsyn­legt er að Haf­rann­sókna­stofn­un hafi fasta fjár­mögn­un til að sinna burðarþols­rann­sókn­um og vökt­un, að mati Rík­is­end­ur­skoðunar.“ Stofn­un­in þarf að sækja um styrki í Um­hverf­is­sjóð sjókvía­eld­is vegna þess­ara verk­efna og keppa um fjár­magn til að sinna þess­um lög­bundn­um verk­efn­um sem eru grund­völl­ur stjórn­valdsákv­arðana. Dæmi eru um að stofn­un­in hafi ekki fengið út­hlutað úr sjóðnum vegna slíkra verk­efna. Tryggja þarf að fyr­ir­tæki sem nýta firði eða af­mörkuð hafsvæði taki þátt í kostnaði við rann­sókn­ir og vökt­un.“

mbl.is