Andmæla því að úrræðum hafi ekki verið beitt

Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri Matvælastofnunar, segir ekki rétt að stofnunin …
Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri Matvælastofnunar, segir ekki rétt að stofnunin hafi ekki nýtt þvingunarúrræði með markvissum hætti eins og haldið er fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Samsett mynd

Mat­væla­stofn­un and­mæl­ir því að þving­unar­úr­ræðum stofn­un­ar­inn­ar hafi ekki verið beitt af mark­viss­um hætti eins og seg­ir í stjórn­sýslu­út­tekt Rík­is­end­ur­skoðunar. Þeim sjón­ar­miðum hafi verið komið á fram­færi við Rík­is­end­ur­skoðun.

Þetta seg­ir Hrönn Ólína Jör­unds­dótt­ir, for­stjóri Mat­væla­stofn­un­ar, beðin um álit á ný­út­kom­inni skýrslu Rík­is­end­ur­skoðenda um laga­fram­kvæmd, stjórn­sýslu og eft­ir­liti í sjókvía­eldi á Íslandi.

„Dæm­in sem vísað er í er ann­ar­s­veg­ar að í til­viki þar sem líf­massi rekstr­ar­leyf­is er sagður hafa farið fram úr heim­ild. Þar var um að ræða rekstr­ar­leyfi sem heim­ilaði fram­leiðslu upp á 6.000 tonn ár­lega, skv. þágild­andi lög­um. Ekki voru ákvæði um há­marks­líf­massa í því leyfi. Þess utan fór líf­mass­inn hvorki yfir há­marks­líf­massa áhættumats erfðablönd­un­ar né yfir burðarþols­mat þess fjarðar sem leyfið var í. Það leyfi var end­ur­nýjað 2. júní 2022 þar sem ákvæði um 6.000 tonna há­marks­líf­massa var komið inn. Mat­væla­stofn­un vænt­ir þess að við end­ur­skoðun á lög­um um fisk­eldi verði m.a. heim­ilt að beita þving­unar­úr­ræðum við brot á há­marks­líf­massa rekstr­ar­leyfa óháð því hvort líf­mass­inn fari yfir heim­ilaðan há­marks­líf­massa áhættumats erfðablönd­un­ar eða burðarþols­mats hafs­svæða,“ út­skýr­ir hún.

Rík­is­end­ur­skoðun bend­ir einnig á í at­huga­semd­um sín­um að starf­semi rekstr­araðila hafi legið niðri leng­ur en fimm ár án þess að Mat­væla­stofn­un hafi fellt úr gildi rekstr­ar­leyfi. „Mat­væla­stofn­un hafnaði end­ur­nýj­un á leyfi en sú ákvörðun stofn­un­ar­inn­ar var felld úr gildi af úr­sk­urðar­nefnd um­hverf­is- og auðlinda­mála með úr­sk­urði nr. 105/​2021,“ seg­ir Hrönn Ólína.

Kveðst fagna skýrsl­unni

Að þess­um fyrr­nefndu þátt­um und­an­skild­um fagn­ar Mat­væla­stofn­un skýrsl­unni, að sögn henn­ar.

„Skýrsla Rík­is­end­ur­skoðunar er ít­ar­leg og fag­leg. Stofn­un­in hef­ur verið að byggja upp eft­ir­lit með fisk­eldi und­an­farið en það þarf að bæta eft­ir­lit með fisk­eldi til muna til að fylgja eft­ir vexti grein­ar­inn­ar, en eins og staðan er í dag, þá höf­um við ekki náð því nægj­an­lega. Þar þurfa að koma inn m.a. laga­heim­ild­ir, fjár­mögn­un t.a.m. með nýrri gjald­skrá, tækja­búnaður og al­menn stefna stjórn­valda og því fögn­um við að skýrsl­unni í heild sinni og þeirri stefnu­mót­un sem ráðuneytið er að vinna að varðandi fisk­eldi.“

Kveðst Hrönn Ólína vænta þess að „ef lag­aramm­inn í kring­um fisk­eldi verði end­ur­skoðaður, þá verði þving­unar­úr­ræði stofn­un­ar­inn­ar end­ur­skoðuð og efld.“ Þá fagni stofn­un­in því ef „um­sókn­ar­ferli fyr­ir leyf­is­veit­ing­ar til fisk­eld­is verður end­ur­skoðað og mun taka full­an þátt í þeirri end­ur­skoðun verði þess óskað.“

mbl.is