Tónlistarkonan Doja Cat vakti heimsathygli á dögunum þegar hún mætti á tískuvikuna í París þakin 30 þúsund Swarovski-kristöllum. Förðunarfræðingurinn Holly Murray ákvað að endurskapa töfrandi útlit tónlistarkonunnar á TikTok, en það tók hana 27 klukkustundir samfleytt.
Það var Daniel Roseberry, listrænn stjórnandi Schiaparelli, og förðunarfræðingurinn Dame Pat McGrath, sem hönnuðu útlit Doja Cat. Á vef BBC kom fram að teymi tónlistarkonunnar hafi verið í fimm klukkutíma að skreyta hana og klæða.
Murray ákvað að endurskapa útlitið á samfélagsmiðlinum TikTok, en hún eyddi þó aðeins lengri tíma í það en teymi Doja Cat. Murray var í 27 klukkustundir samfleytt að klára lúkkið og notaði 13 þúsund steina.
Eftir að hafa vakað í 27 klukkustundir tók það Murray heila viku að jafna sig. Í samtali við Manchester Evening News sagðist Murray hafa byrjaði að setja steina á andlitið á sér 26. janúar klukkan 11:00, en hún kláraði ekki fyrr en klukkan 14:30 daginn eftir.
„Það er þreytandi að gera það sama aftur og aftur. Það eina sem ég gerði var að taka upp stein og líma hann á líkamann. Á einum tímapunkti var ég hætt að sjá almennilega,“ sagði hún.
Murray deildi öðru myndskeiði þar sem hún tók steinana af, en hún virðist hafa notað fljótandi latex undir steinana. Myndskeiðin tvö hafa vakið heilmikla athygli, en samanlagt hafa þau fengið rúmlega 38 milljónir áhorfa.