Rannsakaður af lögreglu vegna tafa á birtingu laga

Starfsmaðurinn var í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
Starfsmaðurinn var í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Þórður Arnar Þórðarson

Starfsmaður í at­vinnu og ný­sköp­un­ar­ráðuneyt­inu tafði birt­ingu laga um sjókvía­eldi á laxi og var rann­sakaður af lög­reglu í fram­hald­inu. Héraðssak­sókn­ari taldi þó ekki ástæðu til þess að leggja fram ákæru á hend­ur mann­in­um. Þetta kem­ur fram í skýrslu Rík­is­end­ur­skoðunar um sjókvía­eldi. 

Í skýrsl­unni kem­ur fram að lög­in voru samþykkt af Alþingi 20. júní og staðfest af for­seta Íslands 1. júlí. Hins veg­ar óskaði starfsmaður at­vinnu­vega- og ný­sköp­un­ar­ráðuneyt­is­ins eft­ir því að lög­in yrðu ekki birt fyrr en eft­ir 17. júlí 2019 en þau voru birt í Stjórn­artíðind­um þann 19. júlí eða um fjór­um vik­um eft­ir að lög­in voru samþykkt.

Töf­in vakti spurn­ing­ar 

Hátt­erni starfs­manns­ins sem sagður er skrif­stofu­stjóri í Heim­ild­inni vakti grun­semd­ir og upp vöknuðu spurn­ing­ar um það hvort hann væri að hygla ákveðnum fyr­ir­tækj­um í sjókvía­eldi.

„At­beini viðkom­andi starfs­manns varð til­efni til um­fjöll­un­ar fjöl­miðla og op­in­berr­ar umræðu um hvort töf á birt­ingu og gildis­töku lang­an­anna hefði verið óeðli­leg og að til­gang­ur­inn hefði verið sá að veita fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­um tíma til að tryggja að um­sókn­ir þeirra um rekstr­ar­leyfi myndu hljóta af­greiðslu í sam­ræmi við eldri ákvæði laga um fisk­eldi,“ seg­ir í skýrsl­unni.

Fram kemur í skýrslu um sjókvíaeldi að hafi verið til …
Fram kem­ur í skýrslu um sjókvía­eldi að hafi verið til rann­sókn­ar hjá lög­reglu. mbl.is/Þ​or­geir Bald­urs­son

Í júlí 2020 gerði at­vinnu­vega- og ný­sköp­un­ar­ráðuneytið at­hug­un á þess­um embætt­is­færsl­um starf­manns­ins með hliðsjón af ákvæðum laga um rétt­indi og skyld­ur starfs­manna rík­is­ins. Sú at­hug­un leiddi ekki til niður­stöðu en starfsmaður­inn hætti áður en henni lauk seg­ir í skýrsl­unni.

Ekki tal­inn hafa hags­muna að gæta 

Málið fór fyrst til lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu í októ­ber 2020 áður en það var fram­sent til héraðssak­sókn­ara í júní 2021. Héraðssak­sókn­ari til­kynnti þó mat­vælaráðuneyti um að rann­sókn hafi ekki leitt í ljós að það maður­inn hafi ekki haft hags­muni af því að tefja birt­ingu lag­ann né að hallað hafi á rétt­indi ein­stakra manna eða hins op­in­bera. Þar sem eng­in ásetn­ing­ur væri til staðar væri eng­in refsi­á­byrgð. Var rann­sókn hætt í fram­hald­inu.

mbl.is