Heimgreiðslur til foreldra hefjast næsta haust

Greiðslunum er ætlað að brúa bilið frá fæðingarorlofi þar til …
Greiðslunum er ætlað að brúa bilið frá fæðingarorlofi þar til barn er innritað hjá dagforeldri eða býðst leikskólapláss. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Heimgreiðslur til foreldra barna á Akureyri sem ekki hafa fengið pláss hjá dagforeldri eða á leikskóla, hefjast næsta haust. 

Upphæð greiðslunnar verður 105.000 kr. á mánuði og tekur breytingum í upphafi árs samhliða ákvörðun um gjaldskrárbreytingar. Greiðslur falla niður þegar barni býðst leikskólapláss, byrjar í leikskóla eða byrjar hjá dagforeldri. 

Reglur um þetta voru samþykktar á síðasta fundi bæjarstjórnar en um er að ræða tilraunaverkefni frá 1. september 2023 til 31. júlí 2024. Greiðslurnar verða greiddar sem styrkur og verða framtalsskyldar til skatts. Þetta kemur fram tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

Rétt á greiðslum frá 12 mánaða aldri barns

Greiðslunum er ætlað að brúa bilið frá fæðingarorlogi þar til barn er innritað hjá dagforeldri eða býðst leikskólapláss, auk þess að koma til móts við foreldra/forráðamenn eldri barna sem eru að bíða eftir leikskólaplássi.

„Í reglunum segir að foreldrum/forráðamönnum barna með lögheimili í Akureyrarbæ verði heimilt að sækja um heimgreiðslur, enda njóti þeir ekki annarra niðurgreiðslna vegna vistunar barns og séu að bíða eftir leikskólaplássi. Foreldrar/forráðamenn hafa rétt á að sækja um heimgreiðslur frá 12 mánaða aldri barns,“ segir í tilkynningunni.

Greiddar í allt að 11 mánuði á ári

Hægt verður að sækja um heimgreiðslur í gegnum þjónustugátt bæjarins og mun gildistími heimgreiðslna miðast við næstu mánaðamót eftir að barn nær 12 mánaða aldri. 

Heimgreiðslur verða greiddar í allt að 11 mánuði á ári en eru ekki greiddar vegna ágústmánaðar.

Gildistími reglnanna er til 31. júlí 2024. Komi til þess að reglurnar verði framlengdar skal það liggja fyrir sex mánuðum áður en þær renna út.

mbl.is