„Það er 40% kelling í aflanum“

Veður og sjólag er afburðagott fyrir loðnuveiðar og þurfti Börkur …
Veður og sjólag er afburðagott fyrir loðnuveiðar og þurfti Börkur NK aðeins sex klukkustundir á miðunum til að ná þúsund tonnum af loðnu. Ljósmynd/Síldarvinnslan: Björn Steinbekk

„Við feng­um afl­ann í þrem­ur köst­um vest­an við Hrol­laugs­eyj­ar. Þarna var tölu­vert að sjá af loðnu og ég held að veiðin hjá skip­un­um sem þarna voru hafi al­mennt verið góð,“ seg­ir Hjörv­ar Hjálm­ars­son, skip­stjóri á Berki NK, um gang loðnu­veiða í fær­lsu á vef Síld­ar­vinnsl­unn­ar.

Skipið lagði við bryggju í Nes­kaupstað í nótt og voru um þúsund tonn af loðnu um borð eft­ir aðeins sex klukku­stund­ir á miðunum.

„Það er 40% kell­ing í afl­an­um og hrogna­fyll­ing­in er um 14%. Farið er að frysta á Jap­an þegar hrogna­fyll­ing­in er 15% og því er stutt í Jap­ansloðnuna. Von­andi fæst slík loðna í næsta túr. Mér líst mjög vel á fram­haldið, ekki síst vegna þess að það verður friður á miðunum næstu daga. Menn eru orðnir býsna þreytt­ir á bræl­un­um sem hafa herjað á okk­ur að und­an­förnu,“ seg­ir Hjörv­ar í færsl­unni.

Afl­inn verður unn­inn í fiskiðju­veri Síld­ar­vinnsl­unn­ar, en þar vinna nú um 70 starfs­menn í sam­felldri vinnslu á þrískipt­um vökt­um.

mbl.is