Síðasti bátasmiðurinn lýkur námi

Einar Jóhann Lárusson við sveinsstykki sitt í Tækniskólanum, opnanlegt fag …
Einar Jóhann Lárusson við sveinsstykki sitt í Tækniskólanum, opnanlegt fag í Sæbjörg BA 59 á Reykhólum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Ég vonast til að geta helgað mig bátasmíðum og bátaviðgerðum, en til öryggis ákvað ég að taka líka próf í húsasmíði,“ segir Einar Jóhann Lárusson, 28 ára, sem í gær lauk sveinsprófi sem bátasmiður frá Tækniskólanum í Hafnarfirði, síðastur manna til að leggja stund á þessa gömlu iðngrein sem nú nýtur ekki lengur lögverndunar og verður framvegis sameinuð námi í húsasmíði, að því er fram kemur í Morgunblaðinu.

Einar Jóhann útskrifast formlega ásamt fleiri iðnsveinum í vor, en húsasmíðaréttindin hefur hann þegar öðlast. Bátasmíðanámið stundaði hann undir handarjaðri meistara síns, Hafliða Aðalsteinssonar, sem smíðað hefur fjölda tréskipa og unnið að viðgerð eldri báta. Hrafnkell Marinósson hafði umsjón með námi Einars í Tækniskólanum.

Lesa má viðtalið í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: