Ofurfyrirsætan Gisele Bündchen flaug heim til Brasilíu í lok síðustu viku. Bündchen ætlaði greinilega ekki að missa af kjötkveðjuhátíðinni í Rio de Janeiro sem hófst í síðustu viku og lýkur seinna í þessari viku.
Fyrirsætan beið ekki boðanna. Á sunnudaginn var fyrirsætan mætt til að fylgjast með skrúðgöngunni á Sambadrome Marques de Sapucai. Um er að ræða einskonar leikvöll með stúkum sem sérstaklega var byggður fyrir sýningar á kjötkveðjuhátíðinni.