Skýrsla ráðgjafafyrirtækisins Boston Consulting Group um tækifæri og áskoranir lagareldis á Íslandi verður kynnt á opnum fundi á morgun.
Skýrslan er unnin að beiðni Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra, og „gerir ítarlega úttekt á stöðu lagareldis á Íslandi ásamt framtíðarmöguleikum og áskorunum greinarinnar. Niðurstöður skýrslunnar munu nýtast við stefnumótun fiskeldis á Íslandi til framtíðar. Tekið var mið af umhverfismálum, verðmætasköpun og regluverki,“ að því er fram kemur í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.
Samið var síðastliðið sumar við ráðgjafarfyrirtækið um gerð skýrslunnar og er hún liður í áherslu stjórnvalda á að „kortleggja tækifæri til sjálfbærs vaxtar greinarinnar með vísindalega þekkingu að leiðarljósi. Gerð var samanburðargreining við þau lönd sem stunda lagareldi ásamt úttekt á mögulegum mótvægisaðgerðum vegna umhverfisáhrifa af hinni ýmsu starfsemi, þ.m.t. sjókvíaeldis.“
Fundurinn fer fram á Grand Hóteli klukkan 13:30 á morgun (þriðjudag), en fundurinn verður einnig í beinu streymi.