Fer ófögrum orðum um kærustu Piqué

Shakira sparar ekki stóru orðin í nýju viðtali.
Shakira sparar ekki stóru orðin í nýju viðtali. AFP

Poppdívan Shakira hefur verið óhrædd við að gera grín að nýju sambandi fyrrverandi kærasta síns, spænsku fótboltastjörnunni Gerard Piqué. Sagt er að sambandið hafi byrjað á meðan Shakira og Piqué voru enn saman, en nýja kærastan er hin 23 ára Clara Chia Marti.

„Það er staður í helvíti sem er frátekinn fyrir konur sem styðja ekki aðrar konur,“ sagði Shakira í samtali við Canal Estrellas á dögunum. Þá segist hún nú hafa gert sér grein fyrir því að hún geti verið algjörlega sjálfbjarga eftir að hafa trúað því áður að hún þyrfti á karlmanni að halda. 

„Ég hef alltaf verið tilfinningalega háð karlmönnum sem ég hef orðið ástfangin af, og ég held að ég hafi núna getað skilið þá sögu frá öðru sjónarhorni og í dag er ég sjálfri mér næg,“ bætti hún við. 

Felur ekki reiðina 

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem söngkonan fer ófögrum orðum um nýju kærustu Piqué, en í ársbyrjun gaf hún út lag þar sem hún gerir kaldhæðnislegt grín að Marti og skýtur föstum skotum á Piqué. 

Þá setti hún nýverið myndskeið á TikTok þar sem hún dansaði við lagið Kill Bill eftir SZA. Í textanum er sungið um að myrða fyrrverandi kærasta og nýju kærustuna, en myndskeiðið vakti mikla athygli og þótti beint skot á Piqué og Marti. Þá hefur myndskeiðið fengið yfir 29 milljónir áhorfa.

mbl.is