Áætlað er að framleiðsluverðmæti í fiskeldi og þörungarækt geti orðið 140 til 430 milljarðar íslenskra króna eftir tíu ár. Til samanburðar má geta þess að það nam 45 milljörðum á árinu 2021. Grunnsviðsmynd gerir ráð fyrir 242 milljarða verðmætum en það svarar til 6% af vergri landsframleiðslu.
Við þetta gæti störfum fjölgað úr 2.200 í 7.000 sem er 3% núverandi vinnuafls og skattar og gjöld gætu numið um 3% af heildarskatttekjum. Miðað við þær forsendur sem Boston Consulting Group gefur sér við gerð skýrslu um stöðu og framtíð lagareldis á Íslandi er niðurstaðan sú að eldið geti orðið að nýrri efnahagslegri stoð á Íslandi.
Skýrsla erlenda ráðgjafarfyrirtækisins var unnin fyrir matvælaráðuneytið og var hún kynnt í gær. Lagareldi er yfirheiti yfir fiskeldi í sjókvíum, í landeldisstöðvum og á úthafinu ásamt ræktun og nýtingu smáþörunga og stórþörunga.
Skýrslan er liður í að móta stefnu stjórnvalda í málefnum lagareldis og lýsti Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra ánægju sinni með vinnuna að baki skýrslunni á blaðamannafundi. Unnið er að fleiri greiningum.
Ítarlega er fjallað um niðurstöður skýrslunnar í Morgunblaðinu í dag.