Marsrallið hafið og héldu fjögur skip á miðin

Skip Hafrannsóknastofnunar við bryggju í Hafnarfirði. Bæði héldu til mælinga …
Skip Hafrannsóknastofnunar við bryggju í Hafnarfirði. Bæði héldu til mælinga á stærð botnsjávarstofna á mánudag. mbl.is/sisi

Stofn­mæl­ing botn­fiska á Íslands­miðum hófst mánu­dag­inn 27. fe­brú­ar og stend­ur yfir næstu þrjár vik­urn­ar. Fjög­ur skip taka þátt í verk­efn­inu og eru það tog­ar­arn­ir Breki VE og Gull­ver NS, auk rann­sókna­skip­anna Árna Friðriks­syni og Bjarna Sæ­munds­syni.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu á vef Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.

Þar seg­ir að togað verður á tæp­lega 600 stöðvum á 20 til 500 metra dýpi um­hverf­is landið. Hægt er að fylgj­ast með leið skip­anna og tog­stöðvum í beinni á kort­inu neðst í frétt­inni.

„Verk­efnið, sem einnig er nefnt marsrall eða tog­ar­arall, hef­ur verið fram­kvæmt með sam­bæri­leg­um hætti á hverju ári síðan 1985 og er þetta því í 39. skipti sem mæl­ing­in fer fram. Helm­ing­ur tog­stöðva var í upp­hafi staðsett­ur af skip­stjór­um en öðrum stöðvum var dreift um miðin með til­vilj­un­ar­kennd­um hætti,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Þá séu helstu mark­miðin að fylgj­ast með breyt­ing­um á stofn­stærðum, aldri, fæðu, ástandi og út­breiðslu botn­fisk­teg­unda við landið. Auk þess er sýn­um safnað vegna fjölda rann­sókna, meðal ann­ars á meng­un­ar­efn­um í sjáv­ar­fangi og mat lagt  á magn ým­is­kon­ar rusls á sjáv­ar­botni.

:
mbl.is