Vill átak í eftirliti með grásleppuveiðum

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur beint tilmælum til Fiskistofu um að …
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur beint tilmælum til Fiskistofu um að átak verði gert í eftirliti með grásleppuveiðum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur beint tilmælum til Fiskistofu um að átak verði gert í eftirliti með grásleppuveiðum á komandi vertíð en veiðar á grásleppu hefjast eftir um mánuð.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins en þar segir að í átakinu verði lögð áhersla á bætta skráningu meðafla sem sé mikilvæg fyrir vottun útfluttra íslenskra sjávarafurða. Áður hafi verið farið í sérstakt eftirlit með veiðunum þar sem í ljós hafi komið að skráningu á meðafla, auk sjávarspendýra og fugla, hafi verið ábótavant.

Gráslepputuinna hífð í land af Ásdísi ÞH-136 á Húsavík
Gráslepputuinna hífð í land af Ásdísi ÞH-136 á Húsavík mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

„Fyrir innfluttar sjávarafurðir eru gerðar kröfur af hálfu bandarískra stjórnvalda og alþjóðlegra vottunarfyrirtækja um skráningu meðafla. Bent hefur verið á í úttektum vottunarfyrirtækja að án aðgerða gætu íslenskar sjávarafurðir veiddar á línu og í net, líkt og grásleppuhrogn, misst vottunarskírteini á erlendum mörkuðum,“ segir í tilkynningunni.

Bandarísk stjórnvöld framlengdu á síðasta ári undanþágu til 31. desember 2023 frá innleiðingu reglna um vernd sjávarspendýra og fugla við fiskveiðar og fiskeldi. Reglurnar gilda um innflutning til Bandaríkjanna á sjávarafurðum úr fiskveiðum þar sem sjávarspendýr eru meðafli.

mbl.is