61% mótfallin laxeldi í opnum sjókvíum

Fiskeldi.
Fiskeldi. mbl.is/Helgi Bjarnason

61% aðspurðra í nýrri skoðana­könn­un eru nei­kvæð gagn­vart lax­eldi í opn­um sjókví­um á meðan 14% svar­enda segj­ast já­kvæð gagn­vart slíku lax­eldi.

Þetta kem­ur fram í nýrri könn­un Gallup sem var gerð í öll­um lands­hlut­um dag­ana 16. til 27. fe­brú­ar.

„Þetta er tölu­verð breyt­ing í viðhorfi frá því að Gallup gerði sams­kon­ar könn­un haustið 2021 og ljóst að sí­fellt fleiri Íslend­ing­ar eru nei­kvæðir í garð lax­eld­is í opn­um sjókví­um,” seg­ir í til­kynn­ingu frá Vernd­ar­sjóði Villtra Laxa­stofna (NASF), Íslenska Nátt­úru­vernd­ar­sjóðnum (IWF), Lands­sam­bandi Veiðifé­laga og Lax­inn Lifi.

Einnig var spurt hvort þátt­tak­end­ur teldu að banna ætti lax­eldi í opn­um sjókví­um og af þeim 79% sem tóku af­stöðu voru tveir þriðju­hlut­ar á því að slíkt ætti að banna, eða 52%.

Und­ir­rituð sam­tök skora á rík­is­stjórn Íslands að hlusta á vilja þjóðar­inn­ar og hverfa frá þeirri meng­andi og skaðlegu starf­semi sem lax­eldi í opn­um sjókví­um er. Reynsla ann­ara þjóða sýn­ir að um­hverf­isáhrif sjókvía­eld­is eru óá­sætt­an­legt og það er ekki rétt­læt­an­legt að út­rýma villt­um laxa­stofn­um og vist­kerf­um fyr­ir ofsa­gróða sjókvía­eld­is­fyr­ir­tækja,” seg­ir í yf­ir­lýs­ingu frá NASF, IWF, Lands­sam­bandi Veiðifé­laga og Lax­inn Lifi.

„Ný­út­kom­in skýrsla rík­is­end­ur­skoðunar sýn­ir skýrt að reglu­verk og eft­ir­lit með iðnaðinum er í mol­um og að hags­muna­verðir iðnaðar­ins hafa haft óeðli­lega mik­il áhrif á lög­gjöf­ina. Iðnaður­inn fær að hafa eft­ir­lit með sjálf­um sér og nú þegar hafa grafal­var­leg um­hverf­is­slys átt sér stað. Helst ber þar að nefna slepp­ingu hjá Arn­ar­laxi þar sem 88.000 frjó­ir, norsk­ir eld­islax­ar sluppu út úr einni sjókví út í ís­lenskt vist­kerfi,” seg­ir þar einnig.

Fram kem­ur að öll áform um stækk­un iðnaðar­ins séu bein aðför að nátt­úru lands­ins og villt­um laxi, gegn vilja meiri­hluta þjóðar­inn­ar.

mbl.is