Nepal er sannkölluð gönguparadís. Þar eru átta af hæstu fjöllum heims og fjölmargar fallegar gönguleiðir um sveitir landsins.
Nepölsk stjórnvöld hafa nú bannað göngugörpum að fara í gönguferðir einir síns liðs. Héðan í frá mun fólk sem ætlar í gönguferðir þurfa að ráða leiðsögumann sem er með leyfi frá ríkinu eða ganga í hóp.
Fram kemur á vef CNN að þó ferðaþjónusta, og þá sérstaklega í kringum göngurferðir, sé ein helsta tekjulind landsins þá sé kostnaðurinn við leitar- og björgunaraðgerðir göngufólks sem villist eitt síns liðs verulegur.
„Þegar þú ert að ferðast einn þá er enginn til að hjálpa þér í neyðartilvikum,“ sagði Mani R. Lamichhane, forstjóri ferðamálaráðs Nepals. „Það er í lagi að ferðast einn í borgunum, en í afskekktum fjöllum eru innviðirnir ekki fullnægjandi,“ bætti hann við.