Hlutur íslenskra fjárfesta eykst

Íslenskir aðilar eiga sífellt stærri hlut í fiskeldisfyrirtækjum landsins.
Íslenskir aðilar eiga sífellt stærri hlut í fiskeldisfyrirtækjum landsins. Ljósmynd/Laxar

Íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki hafa verið að koma sterkt inn í lax­eldi. Með því eykst hlut­ur Íslend­inga í viss­um fé­lög­um veru­lega, að því er fram kom í laug­ar­dags­blaði Morg­un­blaðsins.

Með kaup­um Ísfé­lags Vest­manna­eyja á hlut í eign­ar­halds­fé­lagi um meiri­hluta­eign í Ice Fish Farm á Aust­fjörðum á fé­lagið 16,44% hlut í fé­lag­inu og ís­lenskt eign­ar­hald komið upp í um 42%.

Síld­ar­vinnsl­an á rúm­lega þriðjung í Arctic Fish á Vest­fjörðum. Þá eiga ís­lensk út­gerðarfé­lög eða hafa átt að fullu vax­andi fisk­eld­is­fyr­ir­tæki eins og Háa­fell í Ísa­fjarðar­djúpi og Sam­herja fisk­eldi. Íslensk­ir líf­eyr­is­sjóðir, sér­stak­lega Gildi, hafa verið að fjár­festa í fisk­eldi.

Rök­rétt virðist að sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki, sem búa við kvótaþak og ýms­ar tak­mark­an­ir og í ljósi þess að ekki eru lík­ur á aukn­um veiðum, hugi að fjár­fest­ing­um í fisk­eldi.

Ítar­lega var fjllað um málið í Morg­un­blaðinu síðastliðinn laug­ar­dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: