Nýlega birti hönnunartímaritið Elle Decoration lista yfir 10 flottustu hönnunarhótel síðustu tveggja áratuga. Á listanum er eitt íslenskt hótel, Ion Adventure, sem staðsett er á Nesjavöllum.
Ion Adventure hefur vakið þó nokkra athygli, bæði hér heima og erlendis. Það voru arkitektarnir Erla Ingjaldsdóttir og Tryggvi Þorsteinsson sem sáu um hönnun hótelsins sem hefur hlotið fjölda hönnunarverðlauna.
Í tímaritinu fær hótelið lof fyrir stórbrotna hönnun og einstakt umhverfi.
„Tveimur árum eftir að landið var sett á landakortið með öskuskýi Eyjafjallajökuls opnaði þetta hönnunarmeistaraverk í klukkutímafjarlægð frá Reykjavík.
Staðsett við rætur eldfjallsins Hengils – sem enn er virkt, sem eykur spennuna – rís einstakt form Ion Adventure upp úr grýttri hlíðinni, skýlir sundlaug fyrir neðan og býður upp á stórbrotið útsýni yfir hraunbreiðurnar.“
Þetta er sannarlega ekki í fyrsta sinn sem hótelið fær umfjöllun erlendis, en árið 2021 var hótelið til umfjöllunar í þáttunum Amazing Hotels: Life Beyond the Lobby sem breska ríkisútvarpið BBC framleiðir og sýnir á BBC Two.