Kaupa sig inn í þróun úthafskvía

Átta kvíar eru festar á botnfasta súlu úti á hafi. …
Átta kvíar eru festar á botnfasta súlu úti á hafi. Hægt er að sökkva búrunum þegar aldan er of mikil. Tölvuteikning/Aqualoop

Kjart­an Ólafs­son, at­hafnamaður og stjórn­ar­formaður Arn­ar­lax, und­ir­býr út­hafseldi úti fyr­ir suður­strönd Íslands í sam­vinnu við norskt fyr­ir­tæki sem þróað hef­ur kví­ar til lax­eld­is í út­haf­inu.

Fyr­ir­tæki Kjart­ans, Markó Partners, hef­ur fjár­fest í Aqualoop sem er að und­ir­búa fram­leiðslu á út­hafskví­um og tekið þar sæti í stjórn. Norska fyr­ir­tækið geng­ur jafn­framt til liðs við fyr­ir­tæki sem Markó Partners hafa stofnað, Ice­land Offs­hore Salmon, sem er fyrsta ís­lenska fyr­ir­tækið sem stofnað er í þeim til­gangi að hefja fram­leiðslu á laxi úti á hafi.

Aqualoop hef­ur verið að þróa lausn­ir fyr­ir út­hafseldi í fimm eða sex ár í tengsl­um við Há­skól­ann í Þránd­heimi og ol­íuiðnaðinn. Næsta stigið er að kanna virkni búnaðar­ins í til­rauna­tönk­um og semja við skipa­smíðastöð um fram­leiðslu hans. Búnaður­inn grund­vall­ast á tækni sem notuð er við olíu­vinnslu við strend­ur Nor­egs og víðar. Kví­arn­ar eru fest­ar utan á botn­fasta súlu og hægt er að sökkva þeim þegar ald­an er að verða of mik­il fyr­ir lax­inn. Kjart­ani líst afar vel á þessa tækni, seg­ir að lyk­ill­inn að því að fram­leiða fisk í út­haf­inu sé að hægt sé að tak­ast á við út­hafs­öld­una.

Nán­ari um­fjöll­un er að finna í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: