Olían líklegast úr skipsflaki

Fjölmargir dauðir fuglar fundust þaktir olíu í Stafnesi á Heimaey …
Fjölmargir dauðir fuglar fundust þaktir olíu í Stafnesi á Heimaey í Vestmannaeyjum í maí árið 2020. Þrálát olíumengun olli dauða þeirra. Ljósmynd/Náttúrustofa Suðurlands

Líklega var það olía úr skipsflaki á hafsbotni um eina til tólf sjómílur austan eða suðaustan við Vestmananeyjar sem olli því að töluvert af olíublautum fuglum fannst víðs vegar við suðurströnd landsins og í Vestmannaeyjum árin 2020 til 2022, að því er fram kemur í skýrslu Hafrannsóknastofnunar vegna greiningar á uppruna olíumengunarinnar.

„Til þess að greina uppruna með vissu þarf þó að sjást til olíuflekks á yfirborði og rannsaka skipsflök á svæðinu,“ segir í skýrslunni sem birt hefur verið á vef stofnunarinnar.

Greiningin var unnin að beiðni Umhverfisstofnunar og voru notuð tölvulíkön frá Veðurstofunni og Copernicus-gagnaþjónustu ESB til að greina áhrif hafstrauma, vinda og sjávaralda á rek agna á yfirborði.

Fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: